Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Qupperneq 40
40
STcýrsla um aðsóJcn að Þjóðmenjasafninu árin 1893—1912:
Árið 1893 komu 730 Árið 1903 komu 1705
— 1894 — 701 — 1904 — 2038
— 1895 — 609 — 1905 — 2300
— 1896 — 663 — 1906 — 2234
— 1897 — 982 — 1907 — 2473
— 1898 — 1246 — 1908 — 3822
— 1899 — 1192 — 1909 — 5567
— 1900 — 2133 — 1910 — 6602
— 1901 — 2255 — 1911 — 6445
— 1902 — 1831 — 1912 — 6702
8. niQudagsorQ.
Litið á liðna tið og bent á framtið.
Þannig heíir safnið orðið það sem það er orðið, og þannig hefir
um það farið á þessum fyrstu 50 árum þess. Unz þjóðin fékk sjálf
sín eigin fjárforráð óx það mest af gjöfum góðra manna, en síðan
mest fyrir góðan vilja alþingis, sem árlega hefir áætlað því upp-
hæðir til gripakaupa og umsjónar, og nú á síðustu árum hækkað
þessar upphæðir. En þó að mikið megi þakka fjárveitingarvaldinu
og geföndum, sem enn eru margir árlega alt til þessa tíma, má ekki
gleyma að þakka vöxt og viðgang safnsins hinum ötulu og árvöknu
forstöðumönnum þess, og þá einkum og sérstaklega þeim Sigurði
Guðmundssyni og Sigurði Vigfússyni. Þrátt fyrir það þó að launin
fyrir störfin í safnsins þarfir hafi verið í fyrstu engin og síðar jafnan
mjög lítil, lögðu þessir menn mjög mikinn hluta starfsþreks síns og
starfstíma í sölurnar fyrir safnið, eftir að það hafði verið falið þeim
á hendur. Kjörin, sem safnið og þessir umsjónarmenn þess áttu við
að búa, hafa þó ætíð verið of þröng, oflítið fé lagt til safnsins til
gripakaupa og annars, sem það hefir þurft, húsnæðið of lítið og
óhentugt, og síðast en ekki sízt: launin fyrir umsjónina alt of lítil,
svo að mikið hefir jafnan orðið að bíða og bíður enn eftirtímans af
því sem nauðsynlega hefði þurft og þarf að gera. Afleiðingarnar af
þessu hafa orðið þær, að mjög margir merkisgripir, sem átt hefði
að varðveita hér á landi, og helzt á Þjóðmenjasafni voru, hafa verið
eyðilagðir eða verið fargað úr landi, svo að nú kveður jafnan við
þá er spurt er eftir gömlum gripum: »Þetta er alt farið!« — og
svo koma frásagnirnar og dæmin; og í annan stað eru afleiðing-
arnar af fjárskorti þessum þær, að safnið, eins og það þó hefir getað