Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 50

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 50
50 er það og óíslenzt að rita hér »Stephenssyne« og »þeirra Foreldra«, þar sem átt er við hennar foreldra og hans tengdaforeldra, og öll er áletrunin að orðavali og setningarskipun hálfdönsk, og ekki ólíklegt að Sigurði sé nokkuð um það að kenna. — Magnús amtmaður og frú Þórunn önduðust bæði árið 1766; þær tvær dætur, sem getið er i næstneðstu línu, eru Margrét og Ragnheiður, dætur þeirra Olafs amtmanns og frú Sigríðar, sem báðar dóu á fyrsta aldursári sínu; »þeirra« merkir hér nefnilega sinna. Að líkindum eru öskjurnar búnar til beinlínis eftir ósk Olafs stiftamtmanns og dygðamyndirnar á lokinu valdar og gjörðar þessar með tilliti til hans. Ekki er á öskjunum neinn ráðstofustimpill né umsjónarmannsmerki (guardejn-tnerki), og bendir það á að Olafur hafi þekt smiðinn. Sennilega eru öskjurnar einnig upprunalega gjörð- ar til að vera bakstursöskjur, þótt okki komi það að neinu leyti fram í gerð þeirra; hún er alls ekki kirkjuleg. En þetta er ekki sérstakt með þessar bakstursöskjur; mér vitanlega eru engar bakst- ursöskjur til hér á landi frá þessum tíma, sem virðst geti beinlínis vera til þess gerðar að vera bakstursöskjur fremur en sitt hvað annað, er má nota þær fyrir. öskjurnar voru eign Bessastaðakirkju alt til þess er síra Jens Pálsson, þáverandi eigandi Bessastaða, lét þær af hendi við Jón kon- súl Vídalín fyrir nokkrum árum i stað nákvæmrar eftirlíkingar af þeim, sem nú er í Bessastaðakirkju. Reis út af því, er það varð kunnugt, allmikið umtal, og varð úr blaðamál1), sem mönnum hér mun i fersku minni, og er óþarft að svo komnu að fara nánar út.í það mál hér. öskjurnar voru afhentar skrifstofu ísl. stjórnarráðsins í Kaupmannahöfn og síðan sendar þaðan 1907 til þáverandi forstöðu- manns Þjóðmenjasafnsins; eru nú öskjurnar í Vídalínssafni, meðal margra ágætra gripa, er þau hjón höfðu safnað og ánöfnuðu Þjóð- menjasfninu 1907. Var það heiðarlega gjört og mörgum manni fagn- aðarefni að fá þessa gripi hingað til lands sem alþjóðareign. Má nú vænta að mörgum þyki enn meira um vert að hafa fengið aftur öskjurnar frá Bessastöðum, er það er sannað, að þær eru smíðaðar af islenzkum manni. Matthías Þórðarson. *) Skírnir 1905, bls. 265—66. — Reykjavík VI. árg. 54 A tbl. — Skírnir 1906, bls. 89-92.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.