Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Qupperneq 52

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Qupperneq 52
52 dýra (þ. e. Danir) girntist gjarnan fá« og fekk, þyí að Danir rændu honum úr Hóla-dómkirkju 1551 að Jóni biskupi líflátnum. Skálholts- dómkirkja átti og dýrmætan gullkaleik, sem Klængur biskup lét gjöra og setja gimsteinum og gaf kirkjunni. Hvað varð um hann? Hann fór sömu leiðina ogsááHólum; Danir tóku hann einnig. Sjá Árb. 1887, bls. 37—41. Nokkrar hinar ríkustu kirkjur hér á landi áttu marga kaleika. í Sigurðar-registri er sagt að Hóla-dómkirkja ætti 20 kaleika — þar á meðal gullkaleikinn góða — þegar Jón Arason varð biskup og tók við stað og. kirkju. Vér vitum ekki hversu marga kaleika Skál- holts-dómkirkja þá átti, því að engir máldagar hennar eru til frá því fyrir siðaskiftin; máldagarnir munu hafa farist í bæjarbrunan- um mikla í Skálholti 1630, þegar alt bóka- og skjalasafn staðarins varð að ösku. Vér höfum því engar skrár til yfir áhöld Skálholts- dómkirkju frá því fyrir þann bruna, nema afskrift af þeirri er gjörð hefir verið 1589, er herra Oddur biskup Einarsson meðtók staðinn og er þar getið um að honum hafi verið afhentir þá silfurkaleikar 4, en engum þeirra er lýst. Meistari Brynjólfur Sveinsson gjörði nákvæmar skrár yfir allar eignir staðar og dómkirkju er hann af- henti það eftirmanni sínum, meistara Þórði Þorlákssyni, og er þar að eins sagt að hann (Br. S.) hafi meðtekið 5 kaleika en afhent 7. Það verður því ekki séð af gömlum skrám eða skilríkjum hversu lengi þeir dýrgripir, sem hér er um að ræða, kaleikurinn og patinan, hefir verið í eign Skálholtsdómkirkju. Þegar hún var lögð niður — sem dómkirkja — var margt selt af hennar eigum og áhöldum og margt hefir orðið áfram í Skálholtskirkju. Sumt kom til Reykja- víkur-dómkirkju og er til skrá yfir það. Sumt af því sem sjá má af visitasiubókum að til var í Skálholtskirkju á fyrri hluta 19. ald- ar var úr dómkirkjunni gömlu, og nokkrir allgamlir gripir þar á meðal. Nú eru fáeinir af þeim gripum enn i Skálholtskirkju1) en nokkrir eru komnir til Þjóðmenjasafnsins og þar á meðal þessi kaleikur og patina. Ekki eru þau þó til safnsins korain beint frá Skálholti. Eigendur Skálholts seldu gripi þessa Reykjavíkur-dóm- kirkju um 1880, og frá henni voru þeir síðan seldir Þjóðmenjasafn- inu árið 1884 og eru þau nú með tölumerkinu 2596 í Þjóðmenja- safninu. I 1. bindi af myndum þeim (Atlas historique) sem fylgja ferða- sögubókum Paul Gaimards eru á 45. og 46. bl. steinprentaðar mynd- ‘) Sjá Árb. 1908, bls. 41.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.