Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Side 53

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Side 53
53 ir með fullri stærð af þessum kaleik og patinunni, allvel gjörðar og í skránni yfir myndirnar, sem er framanvið þær, er stutt lýsing á kaleiknum og sagt að hann sé að líkindum sá hinn sami sem Klængur biskup gaf Skálholtsdómkirkju. Að ætla að svo sé nær þó engri átt, og er nóg að taka það fram aftur, sem áður var frá skýrt, að sá kaleikur, er Klængur biskup gaf, um miðja 12. öld, var úr gulli, en þessi er úr silfri. En þótt sumir kynnu að ætla að ekki væri treystandi á að sagan færi hér með rétt mál um efni kaleiks Klængs biskups, þá skal það og tekið fram að þótt þessi kaleikur, sem hér er, væri úr gulli, gæti hann samt ekki verið kaleikur Klængs biskups, verksins vegna, sem á honum er, og skal nú, til viðbótar og skýringar myndum þeim er þessu máli fylgja, kaleiknum og patinunni lýst nokkuð. Kaleikurinn og patínan eru úr silfri og algylt. Þyngd kaleiks- ins er 1014 gr. og patínunnar 282 gr. Gfyllingin virðist vera upp- runaleg og er auðvitað kvikasilfurs gylling. Patínan er gylt bæði að ofan og neðan, sem títt er, og kaleikurinn er einnig allur gyltur, einnig stéttin að neðan eða innan og er það óvenjulegt. Á skálinni á kaleiknum myndar gyllingin þykka húð, sem sumstaðar hefir losnað við silfrið og farið af, en myndar sumstaðar smáblöðrur utan á silfrinu. Þó virðist skálin vera upprunaleg. Hæð kaleiksins er 19,7—20,6 sm. og er misjöfn af því að kaleikurinn hefir skekst. Þvermál skálarinnar er mest um barma: 16 sm., en dýptin er 6,8 sm. og þyktin 1,1 mm. ofan til. Leggurinn á milli skálar og stéttar er að lengd 7,2 sm. og 2,5 sm. að þverm. um hliðfleti. Hnúðurinn á honum er að þykt 2,6 sm. og að þverm. um hliðarnar, undir typpunum (rotuli), sem á þær er fest, 7,1, en mælt utan um typpin er þverm. 7,8 sm. Þverm. stéttarinnar er um hliðarnar 17 sm.; þær eru lítið eitt bogadregnar innávið eins og myndin sýnir; þverm. um hornin neðst 19,7—20 sm. Hæð stéttarinnar er um 7 sm. — Virðast allir þrír hlutar kaleiks- ins vera jafnháir, 7 sm. hver. — Þverm. patínunnar er 19,9 sm. um ytri brún barmanna, en við hina innri, eða þverm. botnsins, 13,7 sm. Lögun kaleiksins og patínunnar sést að öðru leyti vel á mynd- unum; leggur, hnúður og stétt eru áttstrend. Utan á hliðarfleti leggs- ins eru kveikt lítil 4 blaða blóm 3 á hvern, beggja vegna hnúðsins, alls 48. Utan á hnúðinn eru kveiktar smágreinar, sem liggja frá legnum og út á hornin á hnúðnum bæði að ofan og neðan, og skift- ast jafnan á vínviðargrein og eikargrein; sömuleiðis mætir vínviðar- grein ofan á hnúðnum jafnan eikargrein neðan á honum. Á öðrum hvorum hliðarfleti á stéttinni eru einnig greinar, 2 eikargreinar og 2 vínviðargreinar. Allar virðast greinar þessar mótaðar eða steypt-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.