Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 54
54
ar, ekki drifnar, og eru kveiktar utan á. Á þeim 4 hliðflötum stétt-
arinnar, scm greinarnar eru ekki á, eru smeltar (emaileraðar) myndir;
þeim er fest þannig á, að mjó bönd eru fest á rönd á hliðfletina,
og grannar snúrur utan með þeim að auk; böndin innilykja hinar
smeltu myndaplötur og eru beygð lítið eitt inn á brúnirnar á þeim
til að halda þeim föstum. Fyrir ofan hverja myndplötu er glær
bergkristall, ferskeyttur á 2 flötunum, sporbaugsmyndaður á hinum
2, en fyrir neðan myndplöturnar eru 2 slíkir kristallar, ferskeyttir
á einum fletinum, en sporbaugsmyndaðir á hinum þremur. Þessum gim-
steinum er fest á stettina á sama hátt og myndplötunum smeltu; —
nema einum, sem virðist hafa losnað af og verið fest síðar með
ræmum, er ganga gegnum stéttina og eru beygðar út af að innan-
verðu. — Alls eru kristallarnir 12. — Neðst á stéttinni, eiginlega
neðan undir henni, eru kveykt við hana 2 bönd umhverfis og er
annað með mótuðum smáblómum á (»valsað«). — Botninn á patín-
unni er sleginn niður með 4 tungum í kross (sjá myndina) og eru
merki guðspjallamannanna grafln í hornin, er verða á milli tungn-
anna, vængjaður maður, uxi — ekki með vængjum —, vængjað ljón
og örn; við hvert þeirra er grafið leturband fyrir nafn guðspjalla-
mannsins, en nöfnin hafa þó aldrei verið grafin á þau. í miðri
patínunni er smelt myndplata, 5,5 sm. að þverm., með mynd af
Kristi sem konungi himins ogjarðar. Grunnurinn er blár og stirndur
gullnum stjörnum, eins og á öllum hinutn myndaplötunum, merkir
sýnilega himininn. Kápa Krists er græn, en sem glóandi aðinnan;
geislakransinn um höfuð hans er rauður og gullinn kross í; einnig
eru höfuð, hendur og fætur, og hnötturinn undir fótum hans, sem
og boginn, gylt silfur, en smelt umhverfls. — Á myndplötunum
smeltu, sem eru á stéit kaleiksins, eru þessar myndir: Kristurbund-
inn og með band fyrir augum, en tveir menn halda honum og hafa
hendur reiddar til höggs. Þessi mynd á við frásögnina í Lúk. 22.
k., 63.—64. v., en er mjög sjaldgæf. — Næsta mynd sýnir húðstrýk-
inguna, hin þriðja krossburð Krists og hin fjórða krossfestinguna og
og standa þau María og Jóhannes hjá krossinum svo sem venjulega
(deesis). Þessar myndplötur eru um 4 sm. á hvern veg; á hverri þeirra
eru 3 mannamyndir. — I typpunum á hnúðunum eru einnig smeltar
plötur, krossmyndaðar og 1,8 sm. að stærð um hornin; eru á þeim
sumum smágreinar með blöðum, en á sumum blórn. Upp í stéttina
að innanverðu er fest efst, þar sem hún gengur upp i legginn, lítil
áttstrend silfurplata smelt og gylt, sem allar hinar, og er á henni
guðs lamb (agnus dei, sjá meðf. mynd). Þverm. þessarar myndplötu
ör 2,6 sm., þykt 1,5 mm., og jafnþykkar munu hinar vera.