Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Síða 18
Skjaldarmerki íslands.
Nokkrar athogasemdir.
I ritgerð sinni um merki íslands, í Andvara 1883, benti Pálmi
yfirkennari Pálsson á það, að þorskurinn í skjaldarmerkinu var á
dönskum myntum jafnan sýndur óflattur frá því 1591 til 1624, en
upp frá því, og á nokkrum ártalslausum myntum frá ofanverðum
dögum Kristjáns 4., var hann sýndur flattur. Einnig benti hann á,
að þorskurinn á innsigli íslands frá 1593 (nr. 4390 í Þjóðmenningar-
safninu) virðist vera óflattur.1) Aleit Pálmi af þessu, að skjaldar-
merkið hafi í fyrstu, eða frá miðri 16. öld og síðan um þrjá aldar-
fjórðunga, verið með mynd af óflöttum þorski, en síðan hafi merkinu
verið breytt, þorskurinn sýndur flattur.
Pálmi sýnir á 2. mynd í ritgerð sinni skjaldarmerki íslands með
flöttum þorski eftir mynd í Landoámu, sem prentuð var í Skálholti
1688. En þessi mynd af skjaldarmerkinu var orðin gömul þá er hún
var notuð á Landnámu þessa. Myndarmótið er til enn, nr. 445 í
Þjóðmenningarsafninu, og tekur Sigurður málari Guðmundsson það
fram í Skýrslu um Forngripasafn Islands II, bls. 50—51, að með
því sje prentuð skjaldmerkismyndin í Enchiridion, Hólum 1600 og
Anatome Blefkeniana, Hólum 1612. En myndarmótið er enn eldra:
Skjaldmerkismyndin aftan á titilblaði sálmabókarinnar, sem Guð-
brandur byskup Þorláksson gaf lít 1589, er prentuð með því. Eldra
er það heldur ekki, þvi að í það er skorið það ártal: 89. Það hefir
verið alveg nýtt er það var notað á sálmabókina og er sennilegast,
að mér virðist, skorið af Guðbrandi byskupi sjálfum.2) Mynd þessi
á sálmabókartitilblaðinu er mjög skýr að öllu leyti, en nú er mótið,
‘) Sbr. ennfr. ritgerð Pálma í Andvara 1898, bls. 248—49.
s) Mynd þessi, bin fyrsta, er gerð var með þessu myndarmóti nýju, mun nú
ekki annars staðar til vera en á þvi eina eintaki, sem til er af titilblaði sálmabókar-
innar, og hefir nú Þjóðmenjasafnið fengið nákvæma eftirmynd (ljósmynd) af því til
þess að setja framan við það eintak, sem safnið á af sálmabók þessari (nr. 1673 i
Þjóðmenningarsafninu).