Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 17
21
á milli þeirra. Séu þetta tvö hús, eru þau elztu menjar um burstabæ
á Bergþórshvoli. Það er einnig athyglisvert, að þau snúa öðruvísi en
öll eldri íbúðarhús á þessum hluta rannsóknarsvæðisins, en öll bursta-
hús á Bergþórshvoli hafa snúið svona, þ. e. eins og nýja íbúðarhúsið
eða samhliða grunnlínum þess.
Gólf nr. 20 kom í Ijós undir nr. 14 á 110 sm dýpi og sneri
eins og nýja húsið, stærð 2,25X4 m. Ofan til var þetta gólf með
kolamylsnu, en neðar með rauðri torfösku. Austast í gólfskáninni
fannst stampur eða neðsti hluti af keraldi, maukfúinn, 40 sm að þver-
máli og 15 sm að dýpt. Undir skáninni var leirmold. I þessari gólf-
skán fundust meðal annars kljásteinar, gjall, brýni, járnkrókur og
láslykkja. Hér hefur staðið eldhús.
Gólf nr. 21. Undir nr. 17 kom fram gólfskán á 110 sm dýpi. Hún
sneri rétt austur og vestur og var að stærð 2,4 X 4,5 m. Hún virtist
vera úr eldhúsi, þar eð í henni var mikil aska, grá taðaska og rauð
torfaska og kolamylsna. I gólfskáninni fannst meðal annars kambur
úr hvalskíði og skákmaður. A milli þessa gólfs og nr. 17 var þunnt
moldarlag.
Gólf nr. 22. Vestan við nr. 20, 6 m frá húsinu og 5 m frá norður-
hlið var gólf á 112 sm dýpi, 1,8 X 2,4 m að stærð og sneri næstum