Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 46
50
renndur með sammiðja, upphleyptum hringum ofan á. Fannst í gólfi
18 (223). Á Þjóðminjasafninu eru snúðar frá 19. öld sambærilegir
við þessa.
Hlutir úr beini:
Kambar. Hárgreiða, brot af öðrum endanum, 8 sm að lengd, fín-
gerð en óskrautleg, venjulegt lag, ein naglaröð eftir endilöngum ok-
unum og tvær skorur að endilöngu hvor sínum megin við. Fannst í
gólfi 46 og mun mjög forn (796). Hárgreiða (22. mynd) sömuleiðis
sett saman á venjulegan hátt úr beinþynnum, 15.5 sm að lengd,
okarnir jafnbreiðir með upphleyptum böndum að endilöngu og
23. mynd. Hárgreiða úr horni og kambur úr hvalskíði.
— A unilateral bone-comb of a mediaeval type and
a double comb made of whale’s jaw.
tveimur röðum af þéttsettum eirnöglum; standa beinþynnurnar aftur
á milli okanna og eru með laufaskurði, sem minnir á sagartennur,
en annars er bakið beint. Á yztu tönnunum báðum megin, sem hafa
að venju verið breiðastar, sézt fyrir sammiðja hringnum, en annars eru
allar tennur brotnar úr nú. Fannst í moldum við norðurbakka á -~ 170
(766). Kambur tvíraða úr hvalskíði (23. mynd) okalaus, 6,2 sm að
lengd, 5,2 sm að breidd, mjög stórgerðar og gisnar tennur öðrum
megin, en að því skapi smágerðar og þéttar hinum megin. Sambæri-
legur við S. Grieg: Middelalderske byfund, bls. 233, mynd 197 a—b.
Fannst í sorpgryfju 1, -í-160 (702). Kambur óheill úr sama efni og
af sömu gerð. Fannst í gólfi 21 (285). Þetta eru einu okalausu
kambarnir, sem hér á landi hafa fundizt.
Kotrutafla úr hvalbeini fannst norðan við sorpgryfju 1, á -r-200,
kringlótt og slétt, 5,5 sm í þvm (630). Kotra var leikin á miðöldum