Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 56
60
Járnmolar og brot, alls 16, óskilgreinanleg.
Bronsþynnur, litlar agnir.
Vikurmolar 2, hafa verið notaðir til að skúra og fægja með.
Kljásteinar.
VaSsteinn, með skoru umhverfis, mjög líkur vaðsteinum frá seinni
tímum.
Gólískánir þær þrjár, sem nú hafa verið taldar, voru allar við
norðurbrún rannsóknarsvæðisins, svo að heita mátti, að norður-
veggur þeirra allra væri á sama stað og rennur hann í eitt, þegar
gólfin eru teiknuð hvert ofan í annað. 011 hafa þau sömu stefnu,
þ. e. þau snúa öll eins og steinhúsið og samhliða við frumlínurnar í
rannsóknarsvæðinu, brunalagið eitt hefur nokkuð aðra stefnu. Bendir
það á, að hús það, sem brunalagið er undan, hafi að engu leyti verið
notað, t. d. veggir, þegar skálinn var reistur ofan á því, enda muni
þarna hafa liðið nokkur tími á milli.
Auk þeirra gripa, sem taldir eru upp með hverju gólfi, fundust í mold-
nm hér og hvar eftirtaldir gripir:
Kvarnarsteinsbrot. úr glimmerskífer, yfirsteinn, hefur verið um 40 sm,
íhvolfur, með upphleyptum kraga kringum augað. í brotsári sér fyrir
gatinu eftir standinn. Lítið brot úr sams konar steini fannst efst í ösku-
haugnum vestast í rannsóknarsvæðinu (sjá bls. 55).
Brýnisbútar 10.
Vaðsteinn, venjulegur.
Tinnumoli, ljósleitur, allstór.
Snældusnúður, hálfur, úr grænum mjúkum steini, hefur verið kúptur,
4,8 sm í þvm.
Vikurmoli, egglaga, hefur verið notaður til að fægja með.
Járnnaglar 2, annar með áfastri bronsþynnu.
Brunalagið. Eins og þegar er á drepið, var brunalagið í tvennu
lagi, þ. e. undan tveimur húsum (27. mynd). Var hið stærra rakið
fyrst. Kom í ljós, að það var aflangt frá austri til vesturs. Suðurbrún
þess varð öll rakin bilbugalaust, sömuleiðis austurbrún (gafl húss-
ins) og sást þar mjög greinilega rösklega 1 m löng tunga austur úr
henni syðst. Norðurbrúnin var einnig mjög skýr á 7 m bili vestast og
1,50 m austast, en á kaflanum þar á milli, 5,50 m, varð hún ekki
rakin, enda var brunalaginu þar suður af greinilega umrótað af
mannavöldum. Er efalaust, að það hefur gerzt við byggingu skálans,
sem síðar var reistur á staðnum, enda var gólf hans allt að austan-