Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 124
126
og hún verið vörn að baki. Nú er áin meira grafin og fáa metra frá
steininum. Stærð hans er 24 m ummáls, hæðin 1—2 m nú, en lægri að
sjálfsögðu, þar sem gróður hefir legið að honum. Að ofan 8 m á lengd og
3,6 m breiðastur um miðju, en aflíðandi að norðan og austanverðu efst,
og heldur óþægilegur til aðstöðu í bardaga, nema grasrót kunni að hafa
veitt þar viðspyrnu. — Þverhníptur að sunnan og vestan.
Vað á Rangá hefir verið fyrir ofan steininn á almanna leið úr Fljóts-
hlíð um Knæfhóla. Þar hefi eg kosið að kalla Holtsva8 það, er Njála nefnir.
(Árbók Fornleifafélagsins 1927).
Norður frá steininum, við gömlu Árbæjargötuna, hafa fundizt dysjar
þeirra, sem féllu og ekki hafa þótt svo virðulegir, að svaraði ómaki að
flytja þá heim til kumbla- eða hauggerðar. Dysin voru tvö — líklega sitt
frá hvorum bæ: Sandgili og undir Þríhyrningi. Fundizt hafa þar manna-
bein, en fáir munir, og nú sjást þar engar leifar, nema nokkrir flatir steinar,
vatnsnúnir frá ánni, í örblásnu hrauninu. Ofan við Árholtsbrúnina, í
slakka við næstu beygju árinnar, frá sa. til v., eru sams konar leifar tveggja
dysja. Hvort þær eru frá sama bardaga, verður nú ekki vitað. — Hugsan-
legt, að Þríhyrningsmenn hefðu, þá er næði gafst, flutt skrokka sína í
áttina heim á leið, til auðkennis frá Giljungum, og frá átroðningi vegfar-
enda. — Staður þessi við efri dysina mun heita Haugsvílc, og er að líkind-
um kenndur við dyshaugana.
22. Hrappsstaðir. Svo nefnast bæjarleifar býsna miklar á lág-
lendi vestan við Fiská og nnv. frá Þríhyrningi, í landi Þorleifsstaða,
milli þeirra og Reynifells. Hafa menn löngum haldið, að hér sé býli
það, sem Þráinn Sigfússon byggði Hrappi, skjólstæðingi sínum (sbr.
Njálu) .* Engar aðrar fornar heimildir geta þessa staðar, svo kunnugt
sé. Og Jarðabókin 1711 veit ekkert um hann meira, nefnir þó líka
Hrafnsstaði, sem sennilega er latmæli nafnsins einungis. Rústirnar
sýna svo stór húsakynni og miklar byggingar, að býlið hlýtur að vera
frá fornum öldum.
Brynjólfur Jónsson frá Minna Núpi hefir lýst rústum þessum og
gert uppdrátt af þeim í Árbók Fornleifafélagfsins 1898. Læt eg nægja
að vísa til þess með athugasemd einungis. Rústirnar telur hann 7
1) Skiptar eru skoðanir um bústað Hrapps, og vel má segja líklegra, að
Þráinn byggði honum austan Þríhyrnings en norðvestan. Svo og, að hér
séu byggingar meiri og yngri en við Hrapps hæfi. — Ef til vill hafa Þor-
leifsstaðir verið byggðir upp úr þessu býli. (Árbók Fornleifafélagsins, bls.
33, 1928).