Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1951, Blaðsíða 163
skYrslur
I. Aðalfundur 1950.
Hann var haldinn í sýningarsal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 22.
des., og hófst kl. 5 síðdegis.
Formaður setti fundinn og gat þess, að ekki væri frá öðrum störf-
um félagsins að skýra á árinu en undirbúningi að útgáfu árbókar
fyrir árin 1949 og 1950. Kvað hann hana nú vera fullsetta og mundu
koma út skömmu eftir áramótin. — Ætlunin hefði verið, að hún yrði
komin út fyrir fundinn, en annir í prentsmiðjunni hefðu hamlað.
Þessu næst las formaður upp reikning félagsins fyrir árið 1949.
Hafði hann samþykkt hann og endurskoðendur rannsakað hann, en
ekkert fundið athugavert við hann.
Formaður minntist á það, að umtal hefði orðið á síðasta aðalfundi
um það, að fjölga félagsmönnum. Kvað hann nokkuð hafa verið
unnið að þessu, einkum með persónulegum viðtölum, og fjelagsmönn-
um fjölgað um h. u. b. 30 á þessu ári.
Þá fór fram kosning endurskoðanda í stað Eggerts Claessens, sem
látizt hafði á árinu. Var í einu hljóði kosinn Halldór Jónasson frá
Eiðum.
Þá gat formaður þess, að nauðsynlegt myndi að biðja fjelagsmenn
um að greiða næsta ár einhverja viðbót við hið lögákveðna árstillag,
vegna útgáfu árbókarinnar fyrir árin 1949 og 1950. Kom þá fram
sú tillaga frá Bergsteini Kristjánssyni, að fundurinn ályktaði, að árs-
tillög fyrir þau ár skyldu innheimt hækkuð samkvæmt gildandi vísi-
tölu. Tillaga þessi var samþykkt.
Bergsteinn Kristjánsson spurðist fyrir um örnefnasöfnun og hversu
gengi með hana. Taldi formaður vera myndi lítið um menn, sem
hefðu áhuga á því og jafnframt getu, að skrásetja örnefni. Enn fremur
skýrði hann nokkuð frá störfum örnefnanefndar. Séra Jón Auðuns
benti á þá höfuðnauðsyn, að safna ömefnum í sveitum, sem væru að