Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Blaðsíða 13
17
109) og lítur út fyrir, að átt sé við fyrsta bæ í byggð sunnanlands, er
farin er Sprengisandsleið til Arnessýslu.
Sandafell heitir fjall innan við Þjórsárdal og getur Br. J. þess í
Árb. ’97, að þar hafi fundizt smiðjurúst.
Rústin er um 50 m vestan við hinn varðaða Sprengisandsveg, uppi
á brúninni á austurbakka Rauðár í neðstu hlíðum Sandafells. Vatns-
rásir eru fast við rústina báðum megin og koma saman neðan við
2. mynd. Smiðjurúst í Sandafelli. Handan við rústina er gil Rauðár,
en fjærst Kamesingur. (Ljósm. Gísli Gestsson.)
hana. Þarna er steðjasteinn með ryðbrák í grjótrúst, sem lítil skils-
mynd er á. Þessi rúst er í stóru moldarflagi, en um 300 m ofar, og
jafnlangt frá götunni sama megin er vikurbingur alþakinn rauða-
gjalli, svo að tilsýndar lítur hann út sem hraunhóll. Auk þess er þar
nokkuð af grjóti, en byggingarlag sést þar ekki á neinu. Eina stór-
gripstönn fundum við þar.
Bæjarrúst sést þarna hvergi, en leifar af örfoka bæ gætu vel falizt
í stórri urð, sem er norðan við smiðjurústina. Einnig eru þarna í nánd
óblásnar jarðvegstorfur, sem gætu hulið bæjarrúst.
Á þessum slóðum er mikið af gömlum kolagröfum.
Árbók Fornleifafélagsina — 2