Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 91
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
95
skáhöllum skurði frá öðrum eða báðum köntum. í hverjum hring er
leggjunum raðað þannig að þeir mynda K, en með aukaskástriki að
aftan. Blöðin eru meðfram kantinum. í miðjunni er „leggjunum"
raðað stjörnulagað. Utan við hringana, við kant loksins, er útfylling
af þríhyrndum skipaskurðum og bogalínum. Á hlið loksins er inn-
skorið skrautverk, bekkur af innskornum línum og „bátaskurði". Á
hlið neðri öskjunnar, við tágasauminn, eru innskornir ferhyrningar,
líkt og á hlið loksins — óreglulega komið fyrir, og eru þeir merkilega
líkir flugdrekum barna. Annars hefur hliðin annan innskorinn bekk
— skálínur og boga með litlum, hornréttum línum. — Allvel gert.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: Frá H. Sigurðssyni 1888, Akranes.
Samkvæmt H nr. 35 í HS minnsta hf. Þar eru þær aðeins stuttlega
nefndar. — Finn þær ekki í HS stærsta hefti.
1. 6U.9U7. Trafaöskjur úr furu, kringlóttar, festar saman með
trétöppum og tágum. Þverm. 24-25, h. um 8.
2. Trétappar dottnir úr og botnplatan laus. Brotið er af hér og
þar alla leið neðst á neðri öskjunni og úr kanti lokplötunnar. Ómál-
aðar. 42. mynd. 12.Z.y.
3. Otskurður ofan á lokinu. Meðfram ytri kantinum er bekkur af
fléttuðum böndum, dreginn með innskornum línum. Á miðfletinum
er upphleypt sexblaðarós, um 2—3 mm að hæð, úr einu bandi, sem
lagt er í frammjóar lykkjur. Tveir „bandhringar“, hvor innan í öðr-
um, eru brugðnir gegnum „armana“. 1 hverju millibili milli „arm-
anna“ vex fram jurt. Á öðrum hvorum stöngli er klauf, sem ytra
bandhringnum er brugðið í gegnum, en öðrum hvorum stöngli er
brugðið gegnum rifu á hringnum. Allir enda þeir í skúfum af upp-
vöfðum stönglum og blöðum með ýmiss konar skurði í hinum ein-
stöku flipum. Mjór hringur er skorinn sem umgerð um flötinn. Byrj-
un á bekk af innskornum vinkillínum er við tágasauminn á hlið loks-
ins. — Allvel gert.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Sennilega frá fyrri hluta 17. aldar.)
5. Áletrun engin.
6. L: Frá Helga presti Sigurðssyni, Akranes, Island. 1888.
Hlýtur að vera nr. 11 í „Viðbót“ í HS stærsta hf.:-----Eg keypti
hana (1883) í Leirársveit.
8. Peasant Art, fig. 27.