Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 112
116
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
1. 38.837. Snælda (halasnælda), halinn úr furu, snúðurinn úr
birki, með látúnshnokka, venjulegt lag. Halinn er með skorum rétt
fyrir neðan snúðinn, þar sem hann er gildastur, heldur svo áfram
ferkantaður nokkuð niður, en smámjókkar og verður sívalur eftir
því sem neðar dregur. H. um 31, þverm. 5.
2. Snúðurinn slitinn og virðist vera eldri en halinn. Ómáluð.
222.K.a.
3. Á snúðinn eru dregnir með innskornum línum fjórir beinir
bandbútar, sem skera hver annan og mynda rúðumunstur. Böndin
eru 5-9 mm breið, með innri útlínum. í ferhyrningi á miðjunni er
innskorinn hringur kringum gatið og þríhyrndur skipaskurður í
hvert horn. 1 hvern hinna f jögurra ytri ferhyrninga er skorinn höfða-
letursstafur, og í hvern af ytri þríhyrningunum eru innskornar vinkil-
línur. — Gert af lítilli nákvæmni.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun: g o d a.
6. L: Keypt af fil. kand. Rolf Arpi, Uppsalir, 8. 12. 1883.
8. Afbildningar, pl. 20, nr. 103.
1. 56.570. Snælda (halasnælda) úr birki, með stálhnokka, venju-
legt lag. L. 39.5, þverm. 6.5.
2. óskemmd. Ómáluð. 75.B.á.
3. Ekkert annað skraut en fimm innskornir hringar, hver innan
í öðrum, ofan á ávalanum á snúðnum.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: Keypt hjá Friðrik Möller, kaupm., Eskifirði, Island, 12. 10.
1887.
7. L: Snældan lítur út fyrir að vera óbrúkuð.
MÞ: Mjög nýleg.
1. 59.196. Snældusnúður úr furu, venjulegt lag (sem sneið ofan
af kúlu og með gati í miðju). Þverm. 6.5.
2. Dálítið slitinn. Ómálaður. 75.B.á.
3. Svolítið bandaskrautverk ofan á, næstum eins og valhnútur,
dreginn með innskornum línum. ,,Bandið“ er um 7 mm breitt og hefur
innri útlínur. Innskorinn tölustafur er á hverjum hinna ytri flata,
saman verða þeir ártal. — Vel gert.
4. Ártal: 1776.