Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 145
SKYRSLUR
I. ASalfundur 1956.
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags var haldinn í Þjóðminjasafninu
ninn 29. desember.
Formaður setti fundinn og minntist félaga, er látizt hafði á árinu, séra
Ásgeirs prófasts Ásgeirssonar. Risu menn úr sœtum sínum í virðingar skyni
við minningu hans.
Formaður skýrði frá því, að á fyrra ári hefði komið út registur yfir síð-
ustu 25 árganga Árbókar félagsins og í prentun vœri árbók fyrir árin 1955
og 1956. Var samþykkt með öllum atkvæðum að senda öllum félagsmönnum
registrið og krefjast 30 kr. gjalds fyrir.
Þessu næst las formaður upp endurskoðaðan reikning ársins 1955.
Annar endurskoðenda, Halldór Jónasson, kvaðst ekki geta gegnt því starfi
lengur sökum sjónleysis. í hans stað var Theodór Líndal kosinn endur-
skoðandi til eins árs.
Fleira gerðist ekki á fundinum.
Matthías Þórðarson.
Kristján Eldjárn.
II. Reikningur yfir tekjur og gjöld Fornleifafélagsins 1955.
1.
2.
3.
4.
5.
T e k j u r :
Sjóður frá fyrra ári:
Verðbréf................................. kr. 53750,00
í sparisjóði ............................ — 56308,95
Styrkur úr ríkissjóði.....................................
Greidd árstillög fyrir 1954, ásamt endurgr. burðargj. . .
Komið inn fyrir seldar bækur í lausasölu .................
Vextir:
Af verðbréfum .............................. kr. 3923,09
í sparisjóði ............................... — 2685,59
kr. 110058,95
— 9000,00
— 3242,20
— 1563,75
— 6608,68
Samtals
kr. 130473,58