Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 16
20
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
un rústanna. Fremst í dyrunum eða raunar öllu heldur fyrir framan
þær eru tvær gríðarstórar hellur, bæjarhellur, varinhellur, en ann-
ars eru göngin ekki flóruð, nema hvað einn steinn liggur í þeim miðj-
um framarlega. Gólf er þar öskublandið moldargólf, lítið eitt hærra
en skálagólfið fyrir innan. Bágt er að segja fyrir víst, hve langar
bæjardyrnar eru. En lengd þeirra er hin sama og þykkt framveggj-
arins, sem virðist hafa verið mjög nærri 2 metrum.
Þegar inn kemur úr bæjardyrum, verður ljóst, að bæjardyrnar eru
vestarlega á aðalhúsi bæjarins, skálanum; er frá dyrum og vestur
að vesturstafni skála aðeins 1,4 m. Skálinn allur er 14,5 m að lengd.
II. mynd. Innan viT> bæjardyr; langur steinn öfirum megin,
hola hinum megin, hornsteinar i dyrakömpum innanveröum
sjdst báöum megin. Inside the main entrance; note corner
stones on both sides of (as yet unexcavated) doorway.
Um miðju er hann 4 m á breidd, en vestast naumast meira en 3,6
m, og austast virðist hann jafnvel hafa verið enn minna, en hér er
ekki hægt að nefna nákvæm mál, þar sem skálarústin var nokkuð
sködduð í austurendann. Gaflhlaðið eða einkanlega suðausturhorn
skálans stóð nokkuð upp úr, og var þetta hið eina, sem til bæjarins
sást, eins og áður er að vikið. Mátti greina bæði ytri og innri hleðslu
gaflhlaðs og þar með veggþykktina, sem virtist vera þarna um 1,5 m.
En rétt vestan við gaflhlaðið var vatnsrás á ská niður yfir þvera