Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 20
24
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Í4. mynd. ViS suTmrvegg
skála, séð vestur eftir, engir
steinar i veggnum, en stein-
ar í röð uppreistir framan
við hann, sbr. 13. mynd, —
South wall of the hall, look-
ing west; in front of ihe
wall stone arrangement of
uncerlain use, cp. fig. 13.
un er til dæmis svo alvarleg, að ekki verður nú með fullri vissu sagt,
hvort verið kunna að hafa aðrar útidyr á skálanum, gegnt búrdyrum.
Ekkert sérstakt bendir til þess. Norðurveggur er hins vegar órofinn
alveg austur í gafl og norðausturhornið er óskemmt. Allur norður-
veggur skálans er fallega hlaðinn með grjóti, víðast í tveimur lög-
um, þar sem suðurveggurinn aftur á móti er allur úr torfi niður úr,
nema ef vera skyldi austast, en þar kemur umrót í veg fyrir örugga
niðurstöðu. í norðausturhorni skálans er 30 sm djúp þró, fóðruð
innan með hellum, sem eru rammlega reknar niður í gólfið, og í botni
þróarinnar liggur stór hella og önnur minni (15. mynd). Margir smá-
steinar voru í þessari þró og við hana, en ekki voru þeir eldbornir.
Þar var og einn góður kljásteinn boraður og stykki af rauðablásturs-
storku. Vel og snyrtilega er um þró þessa búið, en ekki er augljóst til
hvers hún hefur verið sérstaklega.
Þess skal að lokum getið, að sýnilega höfðu hellur verið notaðar
í þakið. Sást röð af slíkum þakhellum um það bil 1 m frá norðurvegg,