Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 26
30
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
spillt var af vatnságangi,, eru dyr inn í búr (21. mynd). Fremst,
við skálavegginn, eru þær 1 m á breidd, sömuleiðis innst, lengdin
er 2,75 m, svo að jafnvel mætti kalla þær göng. Fremst í dyrunum
er eins og þrep, og öllum hallar þeim upp frá skála. Búrgólfið hækk-
ar einnig inn eftir, svo að það er 15 sm hærra við gafl en frammi
við dyr.
20. mijnd. Ulófiir í stofuhorni. — Hearth in one corner of the
living-room.
Lengd búrsins er 4,5 m, en breidjdin 2,25 m fremst og innst. Eystri
gangaveggurinn er með 1—2 lögum af stórum steinum, en til hinnar
handarinnar er allt óskýrara; þó eru þar nokkrir smásteinar, sem
virðast í vegg. Sá veggur hlýtur þó að hafa verið að mestu úr torfi
eins og veggir búrsins yfirleitt. Gafl er þó með grjótundirstöðu góðri.
Við austurvegg standa tveir gólffastir steinar allhátt upp úr, sjálf-
sagt undan stoðum. Þar eru einnig tvær hellur, sömuleiðis ein á gólfi.
Gólfskán er í búrinu, en víða óglögg, einkum innst. I henni sáust
allmörg óbrennd bein, m. a. tennur úr stórgrip. Rétt framan við
miðjan vesturvegg er 40 sm djúpt kringlótt far í gólfið, um 1,10 m