Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 63
GAMLA BÆNHÚSIÐ Á NÚPSSTAÐ
67
með bekkjum, bríkum og bakslám. Húsið er vel stæðilegt að viðum,
en að veggjum lakar, þó ekki ósæmilegt. Þessi eru ornamenta og
instrumenta: Altari og prédikunarstóll, hvorttveggja gamalt. Til
er lítið crucifix af messing, sem stólnum fylgt hefur, hökull af
blámerktum tvinnadúk með hvítum krossi og bláu léreftsfóðri, mjög
slitinn. Rykkilín gamalt með nýrri ermum, brúkanlegt. Annað af
betra lérefti lítt slitið, en þó blakkt. Altarisklæði af hvítu lérefti
bætt, annað silkisaumað, brostið og bætt, með silkikögri að neðan og
viðföstum dúk af bláröndóttu lérefti, undirfóðrað með hvítu lérefti,
þar við er fest kartúnsbrún með silkikögri. Kaleikur af silfri með
patínu af sama, sæmilegur. Korpóral af þrykktu kartúni. Lítill málað-
ur bakstursstampur. Klukka rifin. 2 koparpípur gamlar. Spjald með
gylltri rós yfir altari. Portío er engin, því einn bær liggur einasta til
kirkjunnar, sem er klausturjörð, sem ei er tíunduð, en ábúandinn
heldur kirkjunni og hennar inventarío við og stendur fyrir portion
með þeim kostum að levera til stólsins 1 hundrað og til prestsins 80
álnir. Kirkjubók er engin innréttuð. Herra biskupinn ei vogar upp á
að skikka, vegna fátæktar kirkjunnar, þar til hans kongel. majst. læt-
ur sér allra náðugast þóknast að befala, hvort þessi kirkja skuli af-
takast eður og við magt haldast. Datum ut supra.
Jón Bergsson Páll Jakobsson
Jón Bjarnason Þórður Sveinsson16)
Hér virðist gert meira úr fátækt kirkjunnar en efni standa til,
og má vera að því hafi að nokkru ráðið, að Finnur biskup vildi
leggja kirkjuna niður. Árið 1763 vísiterar Finnur biskup aftur, og
er það síðasta vísitazía að Núpsstaðarkirkju, og er þá allt sagt við
sama og áður og ejnkum fátæktin, enda var þá ekki langt umskipt-
anna að bíða. Með konungsbréfi 17. maí 1765 var þessi kirkja lögð
niður ásamt mörgum fleirum og sóknin lögð til Kálfafells.10).
Hér er rétt að staidra við og virða fyrir sér ástand kirkju og
skrúða hennar. Enda þótt kirkjan væri nú ekki lengur sóknarkirkja
að lögum, stóð húsið samt enn með einhverjum eða mestöllum skrúða
sínum. í vísitazíu Kálfafells 1779 sést þó, að þangað er kominn silfur-
kaleikurinn frá Núpsstað, sem mun hafa verið bezti gripur Núps-
staðarkirkju. Þar með átti Kálfafellskirkja þrjá kaleika.
Sjá má af visitazíu Finns biskups, að enn á kirkjan marga sæmi-