Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 87
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
91
6. Miði er á bakhlið og á honum dönsk þýðing á áletruninni. Þar
stendur ennfremur: Talknafjord. Island. Sk. af Marineleutnant W.
Hoffmann. í safnskýrslunni er bætt við: (ved professor dr. phil.
Warming), c. 1885.
8. Safnskýrslan: Mynd í Tidsskrift f. Industri 1903, bls. 147
(mynd 16, á bakgrunni til hægri).
1. 0. U82. (X 168.) Rúmfjöl úr furu. L. 104. Br. 18. Þ. 1.4.
2. Fáeinar flísar hafa dottið úr fjölinni við brúnir, annars er
hún óskemmd. Brúnbæsuð.
3. Strikheflun meðfram efri og neðri brún á framhlið. Útskurður
innan við þær. í miðju afmarkar mjór rammi með skorum fern-
ingslaga reit. í reitnum er ihs-merki, eins og gert úr böndum, með
upphleyptri verkan og nokkrir mm á hæð. Bókstafirnir eru skreyttir
með innri útlínum, skorum og kílskurði. Báðum megin við miðreit-
inn eru tvær höfðaleturslínur og úti við enda eru hringar, einn
hvorum megin, með bátskorinni sexblaðarós. Yzt er hringurinn úr
röð af kílskurðarstungum, en innan við hana eru ristir þrír sam-
miðja hringar. Blöð eins og hringur um blöð rósarinnar. Hringur
með ristri miðlínu sker þvert yfir blöð rósarinnar. — Dálítið
grófur skurður.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Ihs-merkið ekki annað en þrjú, lóðrétt bönd með S ofan á.
Höfðaleturslínurnar: uinnann mannsi
nsuöndu dsieuerki
(Á miða á bakhliðinni stendur, að áletrunin sé hluti af þekktu ís-
lenzku versi, sem heldur þannig áfram: ð lofar meistarann, margur
hygginn höfðinge heiður af sínum gjörðum fann. í safnskýrslunni
eru sömu upplýsingar.)
6. Safnskýrslan: Dalasýsla, íslandi. Keypt fyrir 2.50 kr.
7. Safnskýrslan: 18. öld.
1. O. U83. (193/1908) Rúmfjöl úr furu. L. 121.5. Br. 15.7. Þ.
um 1.
2. Lítið eitt slitin við endana og kvistur hefur skilið eftir gat á
einum stað, annars heil. Brúnbæsuð á framhlið.
3. Á bakhlið er rist lína meðfram hvorri brún, en fyrir innan
eru ristir bókstafir, anno og ártal. Efri og neðri brún framhliðar
eru strikheflaðar. Sléttur reitur er við endana. Fyrir innan er upp-