Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 114
118
ÁRBÓK FORNLEIFAFELAGSINS
þar lamirnar eru og enda á lokinu. Isafjord. Island. (Kemur heim
við safnskýrsluna).
7. Safnskýrslan: 18. öld.
1. O. 325. (X 297). Kistill úr furu. Hliðarnar geirnegldar. Botninn
festur á með trénöglum. Hjarir úr messingarvír. Kengur úr messing
á framhlið. Lokið kúpt. Er það úr þremur fjölum, en auk þess eru
settir á það okar, þar sem það nær út fyrir skammhliðarnar báðum
megin. L. 35. Br. 14.5. H. 11.5.
2. Lítur fremur nýlega út. Dálítið sprunginn. Smáflísar dottnar
úr hér og hvar. Á bakhlið er hið gegnskorna munstur lítið eitt brot-
ið. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og á lokinu. Tungur á
neðra borði okanna á lokinu. Langhliðarnar eru eins. Fjórar skipa-
skurðarstjörnur, sexblaðarósir, í hring og í einfaldri röð allar.
Gegnskornar. Á skammhliðunum eru tveir gegnskornir teinungs-
undningar hvorum megin. Á öðrum gaflinum eru undir þeim rist-
ar, hornréttar línur og kílskurður, á hinum kross og kílskurður og
smástönglar með ristri miðlínu. Á ytri fjalir loksins eru ristir ein-
faldir bylgjuteinungar. Á miðfjölina er rist ANNO og ártal. —
Snoturlega frá öllu gengið, en hvergi nein afbragös vinna. Ekki sér-
lega íslenzkur blær á kistlinum, hvorki í lögun hans né útskurði.
4. 1854.
5. Ekki önnur áletrun en þegar er greint frá.
6. Safnskýrslan: Askja með skipaskurði og gegnskornum hlið-
um. Ártalið 1854. ísafjörður, Islandi. Keyptur á 40 kr.
1. 0. 3i2. Kistill úr beyki. Festur saman með messingarnöglum
(seinna bætt við járnnöglum). Sennilega ummerki eftir hjarir á
miðri annarri langhlið. Hliðarfjalirnar mjög þunnar, eða um 5 mm.
L. 18.2 Br. 10.2. H. 6.8.
2. Lokið vantar. En á því hafa auðsjáanlega verið okar, þar
sem það náði út yfir skammhliðarnar. Flísar hafa dottið úr brúnun-
um. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og á botni. Á annarri
skammhlið er bandfléttumunstur, þéttur, lágt upphleyptur horna-
línuvefur. Breidd bandanna um 5 mm. Annars upphleypt munstur
úr grönnum stönglum, um 2 mm. á hæð. Breidd stönglanna um 3
mm. Mynda þeir misstóra undninga og brögð. Samhverf tilhögun