Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 119
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
123
megin. I sumum reitunum er samhverf niðurröðun út frá lóðréttum
miðmöndli, í öðrum byrjar jurtin í horni. — Nákvæmlega unnið.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: Staðarhraun, íslandi.
7. Safnskýrslan: um 1800.
1. 0. 355. Kistill úr furu. Trénegldur. Koparhjarir. Okar undir
hinum framstæðu brúnum loksins yfir skammhliðunum. L. 33.2. Br.
19. H. 17.1.
2. Hjarirnar brotnar. Ummerki eftir aðrar. Botninn sprunginn.
Annars staðar fáeinir smábrestir. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og ofan á loki. Alls stað-
ar uppréttur miðstöngull og á hvora hönd aðalgrein, sem vindur
upp á sig. Blaðskúfar og oddhvöss, sveigð blöð. Á hluta af miðstöngl-
inum er naglskurður. Á hinum stönglunum og blöðunum er skorinn
skáhallur flötur frá annarri brún niður að hárri brún hinum megin.
Hæð hins upphleypta skreytis allt að 7—8 mm. Stærstu stönglarnir
meira en 2 sm á br. (Sbr. hliðstæð verk með sams konar skásneidd-
um stönglum í Þjóðminjasafni íslands, Nordiska Museet, Stokkhólmi
og Nationalmuseet, Kaupmannahöfn.) — Vandað og þokkalegt verk.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan. Staðarhraun, fslandi.
1. O. 357. Kistill úr furu. Trénegldur. Hjarir, krókur og lykkja
úr koparvír. Okar hafa verið undir hinum framstæðu brúnum loks-
ins yfir skammhliðunum. L. 15.3. Br. 7.5. H. 6.8.
2. Okana vantar. Margir naglar horfnir. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og ofan á lokinu. Skreytin
dregin upp með ristum línum. Svolítið upphleypt verkan. Rist niður
um 3 mm eða allt að því. Á báðum langhliðunum er til hvorrar hand-
ar stöngull, sem vefst upp í sívafning. Byrja þeir efst í miðju. Stöng-
ullinn er í fyrstu grannur og með ristri miðlínu, síðan með höftum
og hnúð á litlum stilk, innan við er hann loks breiðari (yfir 1 sm.
á br.) og með innri útlínum. Innst er stór hnúður með hafti. Upp-
fylling milli sívafninganna: á framhliðinni lítið, samhverft jurta-
atriði með hnúðum og oddhvössum blöðum með hafti, á bakhlið er
hjartamynd með þríhyrndum skipaskurði. Á annarri skammhlið eru