Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Side 25
29
kuml úr heiðnum sið
haugfé, 157. mynd, bls. 340, enda eru þau af megingerðinni
Rygh 443, sbr. einnig Jan Petersen, Vikingetidens redskaper,
168. mynd, bls. 303. — Á skærunum (skálmunum öðrum megin)
eru miklar leifar af fíngerðum einskeftudúk.
d. Snældusnúöur úr blýi, 2,7 sm í þvermál, 8 mm á þykkt, augað
8 mm í þvermál; snúðurinn er laglega kringlóttur, flatur neðan
og hvelfdur ofan. Þetta er fjórði blýsnúðurinn, sem finnst hér á
landi, og allir fjórir eru þeir næsta líkir, smáir og snotrir, sjá
Kuml og haugfé, 158. mynd, bls. 341. Blýsnúðar eru yfirleitt
sjaldgæfir, Jan Petersen þekkti aðeins 6 í Noregi, sjá Vikinge-
tidens redskaper, bls. 304—305. — Eins og hér að framan grein-
ir, var snúðurinn fastryðgaður við nagla (e í þessari skrá).
e. Nayli (reknagli) heill, en ryðbólginn, einkum á annarri hlið, en
hinum megin er sléttur flötur, eins og naglinn hefði legið upp
að einhverju sléttu, 1. 7,4 sm, hausinn kringlóttur og lítið eitt
kúptur, um 1,6 sm í þvermál. — Fannst með hreyfðum smá-
hlutum til fóta; við naglann var fastryðgaður snúðurinn hér
á undan (d).
í- Steinar, 7 talsins; þar af er einn kollóttur með holum og skor-
um, mesta haf 2,1 sm, geislasteinn (zeolit), og mun eflaust hafa
verið hirtur vegna sérkennilegrar lögunar sinnar; hinir eru
áreiðanlega allir ljósasteinar og hafa verið greindir á eftirfar-
andi hátt af Tómasi Tryggvasyni: Fjórir tinnumolar (dönsk
tinna), þar af einn grár, með steingerðum kuðungi, annar hvít-
ur, mesta haf á honum 4,2 sm, þriðji hvítur og brúnn, fjórði
grænleitur (lítill) ; af hinum er annar (nú í þremur pörtum)
brúnn ópall, sennilega íslenzkur, en hinn (dökkur) sennilega
einhvers konar kísilsteinn. Höfðu allir verið til fóta í gröfinni,
en voru hreyfðir úr stað, áður en rannsóknin var gerð. — Álíka
eldsteinar hafa oft fundizt í gröfum hér á landi áður, sjá Kuml
og haugfé, bls. 347.
Járnstykki, sem ef til vill mætti nefna eins konar bolta, 7 sm að
lengd, flatt, 1,5 sm að breidd og 8 mm þykkt. Neðri endi þess
eða 5 sm hafa staðið í tré, gegnum a. m. k. tvö tréstykki,
sem liggur sitt á hvað í og nokkrar leifar eru eftir af. Virðist
efra stykkið hafa verið 1,3 sm þykkt borð. Efri endi boltans
stendur upp úr þessum trjáleifum, og þar er í kringum hann
járnlauf eða fluga, ferköntuð, 3,5 X 4,0 sm, og hefur hún verið
fest á hornunum með smáum járnnöglum, og sést einn þeirra
vel ennþá. Sá endi boltans, sem stendur upp fyrir og hefur