Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 107
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
111
á ská frá báðum hliðum, en í miðju er upphækkaður miðstrengur.
Smágerðir tungubekkir eru á skáflötunum á einu þessara blaða. —
Grófgerð vinna.
4. Ekkert ártal.
5. Aðeins IHS (eða kannski I Th S?).
1. 2. (2356) Rúmfjöl úr furu. L. 116. Br. 16,5. Þ. um 1,3.
2. Flísað úr brúnunum, dálítið maðksmogin, annars óskemmd.
Ómáluð.
3. Á framhlið er röð af kílskurðarstungum á öllum brúnum,
bæði við langhliðar og á endum; auk þess fimm höfðaleturslínur. —
Ekki unnið af sérstöku listfengi.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaletursáletrunin:
uertuifirogaltumkringmedeilifriblessanþinnisitigds
gudseinlars amannihringsænginiifirminn
uertunuminniuiluhiamedheilögumeinglask
araouinidrifþuallafraennminnheilagabeua
ralighamannalatusofasættennsalinainiþiruakaogtu (?)
1. 3. (2356) Rúmfjöl úr furu. L. 116,5. Br. 17. Þ. 1,2.
2. Dálítið sprungin. Slitin á hornum. Sums staðar maðksmogin.
3. Útskurður á framhlið. Höfðaleturslínur við efri og neðri
brún, að nokkru leyti eyddar. Upphleypingin er mjög lág, en nokkru
hærri á bylgjuteinungi í miðjunni, um 4 mm. Upphaf teinungsins
er í vinstra horni að neðan. Stöngullinn gengur í reglulegum nokk-
uð háum bylgjum, sem hver um sig er fyllt upp með uppundinni
grein. Að öðru leyti er aðeins ein grein eins og lítill krókur til upp-
fyllingar í hverju millibili. Þar að auki vaxa tveir litlir uppundn-
ingar út úr enda teinungsins. Stöngulbreiddin er um 1,5 sm. Innri
útlínur, þverbönd. — Næsta einfaldur og frumstæður skurður.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaleturslínurnar:
---------rtsemegrennsorgedasottsemastadkiemur-----------
---------næturkualasemneidduþi gniotalattuþaiesu----------
1. U. (2356) Rúmfjöl úr furu. L. 110. Br. 20,2. Þ. um 1,5.
2. Dálítið maðksmogin, annars óskemmd. Ómáluð.
3. Utskurður á framhlið, flatt upphleyptur, dýpst skorið eftir
miðri fjölinni. í miðju er breiður hringur með naglskurðarröðum.