Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Síða 119
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
123
Gafl: dhringad
uelurli
Bakhlið: li — aþierþi — de
allstadarosku
Gafl: dgiadil
uekunar
1. U7. (179) Kistill úr beyki. Venjulegt lag. Trénaglar og
járnnaglar. Lamir úr tágum eða einhverju þess háttar. För eftir
handraða. L. 30,4- Br. 19,5. H. 13,9.
2. Lamir skemmdar. Lokið sprungið og viðgert með tréstykkj-
um neðan á. Talsvert af naglaförum og ormasmugum og nokkrar
sprungur. Botn ef til vill yngri. Á báðum hliðum eru nokkur ný
stykki felld í. Ómálaður.
3. Útskurður á loki, hliðum og göflum, mjög flatt upphleyptur.
Krákustígsband milli kílskurðarstungna myndar umgerð yzt á lok-
inu. Annars er munstrið einungis þrír hringar, sem grípa hver í
annan. Á þeim eru innri útlínur. Breiður bekkur eftir miðju og
sker hringana, skreyttur skálínubekkjum. Fletirnir innan í hring-
unum eru fylltir upp með munstrum, sem minna á pálmettur. Utan
við hringana eru nokkrir litlir innskornir bogar með þverstrikum.
Á hliðum og göflum eru aðeins hlutar af þremur hringum með sömu
rnunstrum utan og innan við, auk þess nokkur krákustígsbönd milli
kílskurðarstungna. — Mjög sæmilegt verk.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
1. U9. (170) Kistill úr furu. Venjulegt lag, en listi er á fram-
brún loksins eins og á göflunum. Geirnegldur, botn og loklistar
festir með trénöglum. Málmlamir. Skrá með skráargati. Kistillinn
er læstur, svo að ég hef ekki séð innan í hann. L. 40,5. Br. 23,7.
H. 19.
2. Lamir gallaðar. Nokkuð sprunginn, en annars í góðu lagi.
Ómálaður.
3. Á loki, hliðum og göflum er flatt upphleyptur útskurður. Á
lokinu er stór hringur 1 miðju. Innan í honum er spegilnafndrátt-
ur. Út frá hringnum eru teinungsbútar til beggja hliða. Bandlaga
stönglar með innri útlínum og þverböndum við greinamót. Greinin,
sem vindur sig upp í hverri bylgju, endar á blaðaskúf af sömu gerð
°g á kistli nr. 32, sem vel má vera eftir sama mann. Stóru blöðin