Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Page 129
tSLENZKUR TRESKURÐUR I ERLENDUM SÖFNUM
133
3. Útskurður á loki, hliðum og göflum. Alls staðar flatt upp-
hleypt jurtaskreyti. Á lokinu og langhliðunum tveimur eru teinungs-
bútar, heldur afbrigðilegir að gerð og ekki eins. Á hvorum gafli er
upprétt samhverf jurt, ekki alveg eins á báðum. Allir stönglar eru
bandlaga, með innri útlínum og þverböndum. Uppundningarnir enda
ýmist sem blaðasveipar eða með einni eða fleiri blaðtungum. Fyllt
Upp á stöku stað með smærri blöðum. — Ekki sérlega vönduð vinna,
en munstrið liðlega dregið.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
PRJÖNASTOKKAR
1. 26. (2358). Prjónastokkur úr beyki, eintrjáningur, fer-
kantaður í þverskurð (hornin þó aðeins ávöl). L. 28,9. Br. 3. H. 2,8.
2. Lokið vantar. Hér og hvar brotið úr efri brún, og stórt stykki
vantar í aðra langhliðina. Yfirborð talsvert máð. Ómálaður.
3. Eina skrautverkið er höfðaleturslína á báðum hliðum. — Mjög
laglega gert.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaletrið: gudru-----------—- otte
raprionastockinn
1. 36. (2358) Prjónastokkur úr furu, eintrjáningur, ferkant-
aður í þverskurð. Hefur haft rennilok, sem skotið hefur verið inn
frá annarri hliðinni. L. 31,3. Br. 3. H. 3,6.
2. Lokið vantar. Dálítið ormétinn. Ómálaður.
3. Ristur kross með kílstungum á endaflötunum báðum ofan á
stokknum. Annars aðeins höfðaleturslína á báðum hliðum. — Mjög
laglega gert.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaletrið: ingibiörg/io
nsdóttir/a/st/k
1. UO. (168) Prjónastokkur úr furu, eintrjáningur, áttkantað-
Ur, af því að horn eru mjög sneidd. Rennilok með totu til að taka í,
gerðri eins og tvær tungur. L. (stokksins) 34,4. Br. 4,7. H. 7.
2. Nær öðrum enda er efri brún stokksins bætt með dálitlum
beykisbút. Vandséð, hvort hann hefur verið þar frá upphafi. Þar