Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 141
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1964
145
á þann hátt 843 nemendur í safnið. Þessi starfsemi, sem áður hefur
verið gerð að umtalsefni í ársskýrslu safnsins, virðist hafa gefizt
vel.
Safnauki.
Á þessu ári var safnauki óvenjulega mikill. Færðar voru alls 173
færslur, og er að vísu margt smátt, en í mörgum færslunum eru
mörg atriði saman komin. Skal aðeins drepið hér á það allra helzta,
þó að margt fleira sé mjög umtalsvert og þakkarvert:
Líkan af tírónum áttahring, smíðað og selt safninu af Magnúsi
Pálssyni, Hvalsnesi; einkennisbúningur Páls Briems amtmanns, gef.
Friede Briem, Rvk.; svart silkisjal, „mandilía", gef. Ingibjörg og
Sesselja Eldjárn, Akureyri; vefnaSarsýnishorn fjölmörg, gef. Guð-
í’ún Guðmundsdóttir, Efrahreppi; haugfé úr bátgröf í Vatnsdal í
Barðastrandarsýslu, afh. af Þór Magnússyni; líkan af barkskipi,
gef. Bjarni Stefánsson, Rvk.; þrjú segulbönd með 303 rímnalag-
boðum, gef. Kvæðamannafélagið Iðunn; stór 5 kerta stjaki o. fl. af
Hstiðnaðartagi, gef. (ánafnað) Ásgeir Jónsson, Rvk.; tvö albúm
með gömlum og merkum mannamyndum, gef. Hildur Blöndal, Kaup-
mannahöfn; frumteikningar o. fl. viðkomandi skjaldarmerkjum og
fánum, gef. forsætisráðuneytið; merkileg gólfklukka há og margir
aðrir listgripir, gef. Ása G. Wright, Trinidad; málverk af Reykja-
vík frá 1862 og 160 vatnslitamyndir og teikningar frá Islandi eftir
W. G. Collingwood, þar af 132 í vönduðum römmum, gef. Mark
Watson, Lundúnum. — Þessi síðastnefnda gjöf er ómetanleg, og er
á engan hallað, þótt sagt sé, að þetta sé einhver mesta gjöf, sem
safnið hefur nokkurn tíma fengið. Er þetta ekki heldur í fyrsta
sinn, að safnið nýtur góðs af veglyndi Marks Watsons.
Aðrir, sem safninu hafa gjafir gefið á árinu eru þessir:
Póst- og símamálastjórnin; herra Ásgeir Ásgeirsson forseti, Bessa-
stöðum; María Salómonsdóttir frú, Rvk.; Kristjón Ólafsson hús-
Sagnasmiður, Rvk.; Guðveigur Þorláksson, Rvk.; Sölvi St. Jónsson,
Sigurðarstöðum, Bárðardal; Þórður Tómasson, Skógum; Sophie
Kyle frú, Washington; Björn Jóhannesson, fyrrv. forseti bæjar-
stj órnar Hafnarfjarðar; Lúðvíka Lund, Silfurtúni; Halldóra Guð-
hiundsdóttir, Miðengi; Trausti Þórðarson, Háleggsstöðum, Höfða-
strönd; Vilmundur Jónsson, fyrrv. landlæknir; Þór Magnússon,
safnvörður, Rvk.; Tryggvi Samúelsson, Rvk.; Gunnar Jóhannsson,
Árnanesi, Kelduhverfi; Eðvald Halldórsson, Stöpum, Vatnsnesi;
séra Jón M. Guðjónsson, Akranesi; Björn Þ. Sigurðsson, Hvamms-
10