Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Qupperneq 17
gömul hús á núpsstað
21
sem voru innanvert hlaðnir úr grjóti, stóðu stoðir á steinum. Á
þeim hvíldu móleður eða staflægjur, en þar yfir lágu bitar um
þvera tóftina. Sperrur stóðu á bitunum, og voru sperrutærnar
negldar með trénöglum ofan í bitaendana, en sperrurnar voru stall-
aðar að ofan og trénegldar saman. Á sperrunum lágu þrjú langbönd
hvorum megin undir reisifjöl, en þar yfir hella. Á hellurnar voru
lagðir graskekkir og grasinu snúið inn, síðan var ytra borð þeirra
jafnað og l'oks tyrft yfir með mýrartorfi.
Framan við skálann vestast var byggt lítið svefnhús í samskonar
tóft og skálinn sjálfur, en þil hússins, sem var á hlið við bæjar-
dyraþilið og sneri eins og þa'ð, var aðeins hálfþil, en undir því og
framan við það var dekk eða gluggadekk. Á þilinu voru tveir glugg-
ar hvor upp af öðrum, báðir með 6 rúðum, en efri glugginn var
miklu minni. Þetta hús var nefnt Litlahús, það mun hafa verið port-
byggt, alþiljað með skarsúð, en þó me'ð moldargólfi, lengd 3,20 m,
breidd 2,40 m. Gengið var úr skálanum inn í húsið. Þar stóð niðri
lítil kommó'ða undir glugganum og tvö rúm sitt hvorum megin henn-
ar við veggina. Yfir gl'ugganum, uppi undir lofti, var hilla, sem á
voru geymdar postillur o. fl. guðsorðabækur. Aftan við eystra rúm-
ið var stigi upp á loft, og var hleri yfir stigagatinu. 1 þessum
rúmum sváfu áður Eyjólfur Stefánsson og fyrst Margrét Dag-
bjartsdóttir, afi og amma Hannesar Jónssonar, en síðar Eyjólfur
og síðari kona hans Margrét Jónsdóttir, og Hannes eftir að móðir
hans dó. Loks sváfu þar Jón Jónsson, faðir Hannesar, og Valgerður
kona hans, stjúpa Hannesar.
Uppi á loftinu voru einnig tvö rúm, og þar svaf Margrét Eyjólfs-
dóttir, móðir Hannesar, og frá henni var hann borinn tveggja ára
þegar hún var látin.
Næsta hús vestan bæjardyra var stofa. Það sneri eins og bæjar-
dyrahúsið, breidd um 2,80 m og lengd 6,70 m. Fram að hlaðinu sneri
þilstafn með tveimur sexrúðna gluggum samhliða yfir gluggadekki,
og einum glugga fyrir ofan þá (á loftinu), einnig með sex rúð-
um. í þessu húsi voru fremst stofa, í miðju gangur með Kaffihúsi
og aftast kamers og undir því skot, en yfir stofu og gangi var loft.
Stofan sjálf var að innanmáli 2,80 m á breidd og 3,30 m að lengd.
Hún var alþiljuð með timburgólfi. Þilin voru spjaldsett með mið-
syllu og var lengra bil ofan hennar en neðan. Listar voru á milli
spjalda. Stofan var máluð; á'ður voru listar og syllur dökkbláar, en
spjöld ljósblá. Síðar voru listar og syllur rauðar, en spjöld nærri
hvít. Hurðin var rammahurð með tveimur þverlistum og þremur