Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Qupperneq 155
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968
159
fil. stud. falið að framkvæma rannsóknina, en þeir höfðu báðir unnið
á vegum safnsins við fornleifarannsóknir í Hvítárholti og á Reyðar-
felli. Stóð rannsóknin frá 10. júní til 4. sept. Þarna kom í ljós grunnur
undan lítilli torfkirkju, sem hefur verið endurbyggð nokkrum sinn-
um, því að greinilega voru fjögur eða fimm byggingarstig kirkjunn-
ar. Umhverfis mótaði fyrir kringlóttum garði og á þremur stöðum
varð vart grafa, en vegna smæðar garðsins hefur ekki verið um að
ræða nema tiltölulega fáar grafir í garðinum. Kirkjugarðurinn sem
slíkur var ekkert rannsakaður.
Gísli Gestsson fór til Vestmannaeyja 18. júlí og rannsakaði kuml,
sem kom í ljós fast austan við Skansinn. Þetta er fyrsta fornkumlið,
sem finnst í Vestmannaeyjum, en því miður var það mjög skemmt
af völdum skurðgraftar og nær ekkert beinanna í upphaflegri legu.
Þetta hafði verið karlmannsgröf, en ekkert fannst af haugfé nema
einn hnífur.
Tilkynning kom um þrjú kuml norðanlands, sem vannst þó ekki
tími til að rannsaka. Eitt þeirra er hjá Smyrlabergi á Ásum í Húna-
vatnssýslu, en þar hefur áður fundizt kuml, annað er í Sæmundarhlíð
í Skagafirði og hið þriðja hjá bænum Skoruvík á Langanesi. Ekkert
þessara kumla er í beinni hættu, en þau verða rannsökuð að vori.
Asbjorn Herteig fornleifafræðingur frá Björgvin kom hingáð að
undirlagi Reykjavíkurborgar til athugana á, hversu skuli staðið að
rannsókn gamla Reykjavíkurbæjarins, sem oft hefur verið minnzt á
á undanförnum árum. Athugaði hann gaumgæfilega ásamt þjóð-
minjaverði og safnvörðum Þjóðminjasafns, svo og Páli Líndal borg-
arlögmanni og dr. Þorleifi Einarssyni jarðfræðingi, staðhætti alla
við vestanvert Aðalstræti, Tjarnargötu og Vonarstræti, jafnframt því
sem hann athugaði niðurstöður borana, sem gerðar voru fyrir nokkr-
um árum á þessu svæði. Skiláði Herteig ýtarlegri skýrslu um athug-
anir sínar, en greiða þarf úr ýmsum vandamálum áður en hægt verður
að hefjast handa um rannsóknir á þessu svæði. Samt má búast við, að
þær hefjist á næstu árum, og er til kemur verða þær framkvæmdar í
sameiningu af Þjóðminjasafninu og Reykjavíkurborg.
Eftirlitsferðir voru með færra móti á árinu. Þór Magnússon fór í
ágúst norður í Húnavatnssýslu til athugana og eftirlits og farið var
að Keldum og Stöng svo og á nokkra staði í nágrenni Reykj avíkur.
Heimsóknir fræÓimanna.
Hin síðari ár er orðið allmikið um heimsóknir erlendra fræðimanna
í safnið, enda hefur íslenzk menningarsaga og þýðing hennar fyrir