Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Side 143
fjórar fornar húsamyndir
149
eða eftir að klausturkirkjan var komin upp er auðvitað ekkert hægt
að fullyrða. Hvað sem því líður hlýtur höfundur þess að hafa þekkt
íslenska útbrotakirkju af eigin raun. Með gerð innsiglisins hefur
hann staðfest í mynd þá vitneskju sem einungis var til í rituðu máli.
Hann eykur reyndar við. Af þakturnum og drekahausum á kirkjum
hérlendis hafa engar spurnir borist áður en þær, er sjá má af Sigill-
um Capituli Reynisnesensis Monasterii.
III
Hús í Heynesbók.
Heynesbók er hrein gullnáma fyrir þá sem vilja kynna sér forna
þjóðháttu, full upp með fínum teikningum af hverskyns siðum, leikj-
um og vinnubrögðum, mönnum og dýrum, koppum og kirnum. Þar í
bland er m. a. ein teikning af húsi sem vert er að staldra við.
Heynesbók er lögbók, Jónsbók, kennd við Heynes í Innri-Akranes-
hreppi, þaðan sem hún kom í hendur Árna Magnússonar og ber safn-
númerið ÁM 147 4to. Ólafur Halldórsson handritafræðingur hefur
tjáð mér að bókin sé rituð á Norðurlandi á fyrri hluta 16. aldar.
I landsleigubálki í kafla um brúarhald og ferju hefur ritari Hey-
nesbókar gert teikningu af ferjustað neðst á síðu undir lesmáli (1.
mynd). Hægra megin á myndinni stendur náungi einn og heldur í
horn á kind. Fyrir framan dýr og mann er afmarkaður reitur og í
honum stendur: „viltu ferja sauð“. Út frá eyrum sauðkindarinnar
er lína hlykkjótt, endar í hnykk og stefnir lóðrétt niður, sem eflaust
á að sýna bakkann þeim megin ár. Fyrir miðri mynd er maður að
róa og snýr að þeim sem bíður. Öldur vatnsins eru teiknaðar undir
byrðingi bátsins og ná að áðurnefndum bakka, en nema við húsgafl
hinsvegar, sem sjálfsagt á að standa handan ár, þaðan sem ferju-
maður kemur. Hvernig sem á er litið, má segja að myndin sú arna
sé skemmtileg. Hún gefur vísbendingu um fornan skikk, bátslag,
klæðaburð og það sem ekki síst er um vert: húsasmíð. Við húsið nem-
um við framar öllu staðar. Hvaða bygging er þetta? Því er ekki auð-
svarað, en helst kemur manni til hugar bænhús eða kapella á fjöl-
förnum stað, þar sem ferðalangur gerir bæn sína áður en hann
leggur yfir.
Húsið er með burst, litlum glugga, bogmynduðum dyrum og lás
fyrir (14. mynd). Það er teiknaður biti þvers undir hyrnunni tveim
strikum, tvö strik marka þakbrún sem sjálfsagt á að merkja sperrur.
Á hornunum eru einnig tvöföld strik og túlka má sem hornstafi. I