Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Side 5
SILFURSJÓÐUR I-'RÁ MIÐHÚSUM í EGILSSTADAHREPPI
9
Gaulverjabæ í Flóa, slegin mynt og þrjár óslegnar silfurþynnur, en hvorki
stangasilfur né skartgripir. Síðastnefndi sjóðurinn er 495,81 g að þyngd og
gengur næst þessum nýja sjóði.3 Að auki hafa fundist hér einstaka silfurpen-
ingar frá víkingaöld, sem sumir hverjir hafa verið boraðir og bornir sem skart-
gripir, en þeir eru ekki taldir til sjóða.
Ekki fer á milli mála að þessi nýfundni silfursjóður frá Miðhúsum er hánor-
rænn. Gripirnir eru allir af þekktum víkingaaldargerðum á Norðurlöndum
sem oft finnast, en mestur fjöldi slíkra gripa hefur fundist á Gotlandi í Eystra-
salti, þar sem þeir eru mjög algengir, enda hefur þar verið kaupmannaþjóðfé-
lag um langan aldur og mikið fé í silfri verið í umferð. Þótt þessi sjóður sé
óvæntur fundur hér á landi og gríðarmerk viðbót við íslenska fornleifafundi
víkingaaldar, er hann á engan hátt einstæður sé litið á Norðurlöndin eða nor-
ræna menningarsvæðið á víkingaöld. Það sýnir, ásamt fjölmörgu öðru, hve
hánorrænar menningarminjar víkingaaldar á íslandi yfirleitt eru, og þarf það
að vísu engum að koma á óvart.
Skal nú gerð grein fyrir hverjum hlut úr sjóðnum sérstaklega og eru sam-
stæðir hlutir taldir saman. Allir veigameiri hlutir þekkjast á 3. og 4. mynd.
1. Hálshringur, snúinn saman úr þremur þáttum sem eru gildastir um miðj-
una en til endanna sameinast þeir í eitt stykki með krókum, sem eru
afturbeygðir, og er það dæmigert víkingaaldareinkenni. Hafa endar
krækst saman. Ekkert skrautverk er á hringnum, en hann er algerlega
heill og hefur þó verið beygður saman í miðju og endar lagðir saman
einnig. Baugur þessi er langstærsti gripurinn í sjóðnum, 138,46 g að
þyngd og mesta stærð hans er nú 14,1 sm. Lengdin virðist hafa verið sem
næst 39,1 sm. (5. mynd).
2. Hálshringur, úr tveimur snúrum, sem hvor um sig er undin saman úr
tveimur þáttum, gildustum um miðju. Til endanna hafa þær komið
saman í eins konar spaða, annar er brotinn en hinn vantar. Á enda
spaðans er krókur og hefur svo verið á hinum einnig, eða þá auga sem
krókurinn hefur gripið í. — Baugurinn vegur nú 82,01 g, en lengdin
hefur verið alls um 37,7 sm. Mesta stærð er nú 12,3 sm.
3. Hálshringur, grannur og snúinn saman úr tveimur jöfnum þáttum.
Hringurinn er nú beygður saman nær því í þríhyrning og endar brotnir af
en fylgja báðir, og svipar hringnum til hins síðastnefnda. Hann er þó
mjórri og bláendarnir beygðir í hring. Þyngd baugsins er 34,42 g, lengdin
hefur verið sem næst 39,1 sm, en mesta haf nú er 9,9 sm.
4. Armbaugur, úr sivölum teini, endarnir grannir og læstir saman í sér-
kennilegum vafningi og bláendarnir síðan snúnir upp á gagnstæðan legg.
Baugurinn er óskreyttur, en á honum leikur lítill hringur, snúinn saman