Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1980, Page 141
FRA FORNLEIFAFELAGINU
AÐALFUNDUR 1979
Aðalfundur Hins íslenska fornleifafélags var haldinn hinn 17. desember í fornaldarsal Þjóð-
minjasafnsins og hófst kl. 8.30. Fundinn sátu 50-60 manns.
Formaður félagsins, dr. Jón Steffensen, setti fundinn og minntist fyrst þeirra félagsmanna, sem
stjórnin hefur haft spurnir af að látist hafi síðan aðalfundur var síðast haldinn. Þeir eru:
Árni Snævarr verkfræðingur, Rvík.
Baldur Þ. Gíslason verslunarmaður, Rvík.
Eyjólfur J. Eyfells listmálari, Rvík.
Helgi Þórarinsson bóndi, Æðey.
Jóh. Gunnar Ólafsson fv. bæjarfógeti, Rvík.
Jón Jónsson klæðskeri, ísafirði.
Sigurður Arason bóndi, Fagurhólsmýri.
Sveinn Benediktsson forstjóri, Rvík.
Risu fundarmenn úr sætum i virðingarskyni við þessa látnu félaga.
Formaður skýrði frá því að á aldarafmæli félagsins hefðu því borist nokkur heillaóskaskeyti, en
afmælið var eins og kunnugt er 8. nóvember síðastliðinn. Hann gat þess að senn væri von fyrsta
bindis af endurprentun Árbókar sem Hafsteinn Guðmundsson bókaútgefandi hefur boðist til að
gefa út á sinn kostnað.
Að vanda hafa nokkrir nýir félagar bæst í félagið og eru 670 menn i félaginu, en nokkur mis-
brestur er á að þeir standi allir i þeim skilum, sem þó eru svo nauðsynleg félaginu.
Árbók 1979 kvað formaður nú mega heita fullsetta og mundi hún koma út áður en langt liði á
næsta ár.
Þessu næsl flutti formaður ávarp í tilefni af aldarafmæli félagsins, rakti sögu þess í stórum drátt-
um, drap á framtíðarhorfur og árnaði félaginu heilla.
Næst á dagskrá var það að tehirðir Gísli Gestsson las upp reikning lelagsins fyrir árið 1978.
Þá fór fram stjórnarkosning. Jón Steffensen kvaðst óska að draga sig i hlé frá l'ormannsstörfum
og var Kristján Eldjárn kosinn í hans stað, Þórhallur Vilmundarson skrifari, Gísli Gestsson féhirð-
ir, Magnús Már Lárusson varaformaður, Mjöll Snæsdóttir varaskrifari, Þór Magnússon varafé-
hirðir. Ur fulltrúaráði áttu að ganga Björn Þorsteinsson, Gils Guðmundsson og Halldór J.
Jónsson. Voru þeir allir endurkosnir. Endurskoðunarmenn voru endurkosnir Páll Líndal og
Höskuldur Jónsson.
Að stjórnarkosningu lokinni tók Kristján Eldjárn til máls og þakkaði fyrir það traust sem hon-
urn hefði verið sýnt, en einkum og sér i lagi kvaðst hann vilja þakka Jóni Sleffensen fyrir langt og
gott starf lians fyrir félagið og tóku menn undir það með lófataki.
Nú var orðið gefið laust og lók þá til máls Hafsteinn Guðmundsson og skýrði frá því að hann
hefði ællað sér að vera tilbúinn með fyrsta bindi ljósprentunarinnar af Árbók og koma með það á
fundinn, en það hefði ekki lekist en væri væntanlegt á næslunni og gerði hann ráð fyrir að koma
tveimur bindum frá á næsta ári.
10