Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 25
BJARNAGARÐUR
29
18. mynd. Átta alda gamall garður nýttur sem neðri hluti veggjar i nýrri rétt skammt suður af
heimreið að Eystri-Dalbœ. Ljósm. S.Þ. 1980. — Fig 18. The eight centuries old Bjarnagarður
wall used as the base of a wall of a newly erected sheep fold.
Hlið hafa ekki fundist á garðinum, en þess er að geta, að hann er rofinn af
heimreiðum þar sem hliða hefði verið líklegast að vænta.
Garðurinn liggur yfirleitt vestan í þar sem um hóla og brekkur er að ræða
og er hallinn sumsstaðar nýttur til að fá fram stall, svo sem dæmi voru nefnd um
norðan og sunnan Ásgarðs. Víða má enn sjá, að garðurinn hefur verið bratt-
ari að vestan, sbr. sniðið á mynd 2b og ljósmyndirnar 7-9. Er garðurinn auð-
sæilega hlaðinn fyrst og fremst til varnar gegn ágangi búsmala úr vestri, en
hvorki hugsaður sem landamerkja- né göngugarður. Það síðastnefnda hefur
hann þó orðið með nokkrum hætti löngu síðar og fram á okkar daga. Þórdís
Ágústsdóttir, sem áður er nefnd, minnist þess, að er hún í æsku átti heima í
Ásgarði notaði hún og önnur börn þar í grennd Bjarnagarð sem gönguleið, er
þau sóttu barnaskóla í Þykkvabæ. Á kafla af garðinum milli Víkurbæja vest-
an þjóðvegar liggja nú slóðir ökutækja eftir honum. Á nokkrum stöðum má
sjá, að efni úr garðinum hefur verið notað í yngri hleðslu og að garðurinn
sjálfur hefur verið nýttur sem veggur, svo sem dæmi var nefnt um norður af
Hátúni (5. mynd), en yngsta dæmið um slíka nýtingu Bjarnagarðs er rétt, sem
nýlega hefur verið hlaðin skammt suður af Dalbæjarheimreiðinni og er garð-
urinn nýttur sem neðri hluti austurveggjar hennar (18. mynd).