Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Side 3
KÚABÓT f ÁLFTAVERI I
19
höggnir. í framhlið eru gerð tvö samsett strik, rómönsk kílstrik3, þau
fylgja jöðrum framhliðarinnar, eru hvort um sig samtals 0,026 m breið
og eru sett 0,015 m frá jaðri. Á þeim stoðarkanti, sem snýr vestur er
eins strik og einnig 0,015 m frá frambrún; austurkantur er sléttur.
Niður með framhlið þessarar stoðar hefur verið rekinn fleygur ofan í
gólfið svo að hann nær aðcins um 0,05 m upp úr því, br. A-V 0,159 m
þykkt 0,073 m í efri enda. í hlið fleygsins er nót, 0,02 m víð og 0,03
m djúp. Fleygur þessi virðist vera smíðaður úr gamalli syllu eða því-
líku. Framan við stoðina og ofan við fleyginn var klampi, br. A-V
0,102 m, þ. N-S 0,056 m 1. (=hæð) nú 0,226 m. Klampinn er lögulega
tilhögginn á allar hliðar og sneitt af báðum frambrúnum, smíðaður úr
maðksmognum rekavið. 0,15 m ofan við neðri enda stendur trénagli í
gegnum klampann. Hann er með ferstrendum haus, en endann, sem
standa átti út um bakhlið klampans, vantar. Ekki fór á milli mála að fjöl
hafði verið framan á stoðinni, neðri jaðar hennar hefur legið á efri enda
fleygsins, en klampinn negldur framan á hana og naglinn náð inn í stoð-
ina, en nú var hann ásamt gatinu í stoðina fúinn burt og fjölin með öllu
horfin.
Ekki er stoð austar í þessari röð fremur en í þeirri við norðurvegg,
en 0,95 m austar stendur fjalarbútur í gólfinu, merktur A.A. II. Fjölin
snýr hlið til vesturs, br. 0,14 m, þ. 0,03 m, hæð 0,76 m eða 0,40 m yfir
gólfið. Þessi fjöl svarar til fjalar austan við stoðaröðina við norðurvegg
A.A.I og virðist hafa gegnt svipuðu hlutverki.
Þegar húsið A var grafið upp kom í ljós að bekkir höfðu vcrið með-
fram báðum hliðarveggjum og breiðari pallur við gafl. Við norðurvegg
voru enn á sínum stað fjalir úr framhlið bekkjarins og ummerki sáust
einnig við suðurvegg, sem bentu til bekkhliðar þar og leifar úr framhlið
palls við austurgafl lágu á gólfinu. Skal nú gerð nánari grein fyrir þessu.
Á bilinu milli vesturþils og vestustu stoðar við norðurvegg, A.N.l,
stóð uppi framhlið af bekk, gerð úr tveimur fjölum nokkurn veginn
jafnbreiðum, mesta breidd þeirra nú 0,14 m hverrar um sig. Lengd
bekkhliðarinnar var 1,22 m, hæð efri brúnar frá gólfi nú mest 0,40 m
í vesturendann, en hallaði til austurs, endinn þar virðist hafa sigið, hann
var nú 0,09 m lægri. Fjalirnar hafa líklega verið negldar á vestustu stoð-
ina (A.N.I), því þar var naglagat í neðri fjölinni, en tilsvarandi staður
á efri fjölinni og sjálfur naglinn var fúinn burt og stoðin svo óheil að
ekki varð gengið úr skugga um hvernig þessari neglingu var háttað.
3. Ftörður Ágústsson: Fornir húsaviðir á Hólum, Árbók hins íslcnzka fornleifafélags
1978, Rvk. 1979, bls. 15.