Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Qupperneq 3

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Qupperneq 3
KÚABÓT f ÁLFTAVERI I 19 höggnir. í framhlið eru gerð tvö samsett strik, rómönsk kílstrik3, þau fylgja jöðrum framhliðarinnar, eru hvort um sig samtals 0,026 m breið og eru sett 0,015 m frá jaðri. Á þeim stoðarkanti, sem snýr vestur er eins strik og einnig 0,015 m frá frambrún; austurkantur er sléttur. Niður með framhlið þessarar stoðar hefur verið rekinn fleygur ofan í gólfið svo að hann nær aðcins um 0,05 m upp úr því, br. A-V 0,159 m þykkt 0,073 m í efri enda. í hlið fleygsins er nót, 0,02 m víð og 0,03 m djúp. Fleygur þessi virðist vera smíðaður úr gamalli syllu eða því- líku. Framan við stoðina og ofan við fleyginn var klampi, br. A-V 0,102 m, þ. N-S 0,056 m 1. (=hæð) nú 0,226 m. Klampinn er lögulega tilhögginn á allar hliðar og sneitt af báðum frambrúnum, smíðaður úr maðksmognum rekavið. 0,15 m ofan við neðri enda stendur trénagli í gegnum klampann. Hann er með ferstrendum haus, en endann, sem standa átti út um bakhlið klampans, vantar. Ekki fór á milli mála að fjöl hafði verið framan á stoðinni, neðri jaðar hennar hefur legið á efri enda fleygsins, en klampinn negldur framan á hana og naglinn náð inn í stoð- ina, en nú var hann ásamt gatinu í stoðina fúinn burt og fjölin með öllu horfin. Ekki er stoð austar í þessari röð fremur en í þeirri við norðurvegg, en 0,95 m austar stendur fjalarbútur í gólfinu, merktur A.A. II. Fjölin snýr hlið til vesturs, br. 0,14 m, þ. 0,03 m, hæð 0,76 m eða 0,40 m yfir gólfið. Þessi fjöl svarar til fjalar austan við stoðaröðina við norðurvegg A.A.I og virðist hafa gegnt svipuðu hlutverki. Þegar húsið A var grafið upp kom í ljós að bekkir höfðu vcrið með- fram báðum hliðarveggjum og breiðari pallur við gafl. Við norðurvegg voru enn á sínum stað fjalir úr framhlið bekkjarins og ummerki sáust einnig við suðurvegg, sem bentu til bekkhliðar þar og leifar úr framhlið palls við austurgafl lágu á gólfinu. Skal nú gerð nánari grein fyrir þessu. Á bilinu milli vesturþils og vestustu stoðar við norðurvegg, A.N.l, stóð uppi framhlið af bekk, gerð úr tveimur fjölum nokkurn veginn jafnbreiðum, mesta breidd þeirra nú 0,14 m hverrar um sig. Lengd bekkhliðarinnar var 1,22 m, hæð efri brúnar frá gólfi nú mest 0,40 m í vesturendann, en hallaði til austurs, endinn þar virðist hafa sigið, hann var nú 0,09 m lægri. Fjalirnar hafa líklega verið negldar á vestustu stoð- ina (A.N.I), því þar var naglagat í neðri fjölinni, en tilsvarandi staður á efri fjölinni og sjálfur naglinn var fúinn burt og stoðin svo óheil að ekki varð gengið úr skugga um hvernig þessari neglingu var háttað. 3. Ftörður Ágústsson: Fornir húsaviðir á Hólum, Árbók hins íslcnzka fornleifafélags 1978, Rvk. 1979, bls. 15.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.