Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Qupperneq 6

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Qupperneq 6
22 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS þýðingu fyrir gerð hans né að hún sé úr honum komin. Hún virðist hafa lent þarna af tilviljun og ber að hafa í huga að þar sem til sést var bil milli bckkhliðar og gólfs. Austar, sunnantil á móts við bilið á milli A.S. II og A.S. III lá raftur á rofunum eða neðst í sandlaginu, aðcins 0,20-0,30 m frá suðurvegg, 1. l, 34 m, br. 0,11 m og h. 0,16 m. Hann var gjörfúinn og brotið af báðum endum. Ekki var sjáanlegt að hann hefði neina þýðingu þar sem hann lá. Hann hefur verið ónýtur þcgar honum var hent þarna. Um 0,20 m suðaustur frá A.S. III, en þá stoð vantaði raunar, stóð spýta í gólfinu, ávöl í lögun, þvm. 0,06x0,11 m og náði upp í 0,46 m hæð. Þýðing þessa trés er óljós. Við stoðina A.S. IV mátti sjá þess augljós nterki að framan á hana hefur verið negld bekkhlið og er því lýst hér að framan. Á bakvið stoð- ina, aðeins 0,06 m sunnan hennar, er spýta rekin niður í gólfið, br. A-V 0,08 m, þ. 0,02 m, h. 0,63 m; þýðing hennar er óljós. Framhliðar stoðanna A.S. I, A.S. II og A.S. IV liggja allar í beinni línu. A.S. III vantar, en holan, sem þar var í sandinum bendir til að hlið þeirrar stoðar hafi snert sömu línu. Ég hygg því að hér frarnan við suðurvegginn hafi verið bekkur með beinni hlið, þó hennar sjái nú lítil merki, og að stoðirnar hafi staðið inni í bekknum og bekkhliðarnar negldar framan á þær svo sem sjá mátti við stoð A.S. IV. Nokkurn veginn beint fyrir enda stoðaraðanna við norður- og suður- vegg stóðu fjalir eða tré í gólfinu og sneru sléttum flötum vestur, merktar A.A. I og A. A. II hér að framan (sjá bls. 18 og 19). í stefnu á milli þeirra lágu á tveimur stöðum leifar af fjölum uppi í sandinum. Önnur fyrir miðjum gafli, mjög fúin og óásjáleg, og hin litlu sunnar, 0,05-0,06 m þykk og naglagat í gegnum hana. Spýtan hefur brotnað um gatið og raunar er hún mjög fúin og óheil. Báðar lágu fjalir þessar láréttar og sneru hliðfleti í vestur eða inn í húsið. Nærri syðri fjölinni, 0,93 m frá gafli og 1,53 m norðan við suðurvegg stóð grannur fer- skeyttur stafur í gólfinu, br. N-S 0,07 m, þ. 0,03 m. Hafi framhlið palls verið fest framan á trén A.A. I og A.A. II hefur þessi stafur fallið framan á hliðina á svipaðan hátt og klampinn framan við A.S. IV. Skammt austan við A.A. I er tré uppi í pallstæðinu, þvm. A-V 0,10 m og N-S 0,07 m óreglulcga ávöl að lögun, hæð 0,75 m eða rúmlega 0,35 m yfir gólfhæð. Austur við gafl, 1,30 m frá norðurvegg og 0,12 m frá austurgafli stendur óreglulega ferskeytt tré í gólfi, þvm. N-S 0,07 m, A-V 0,05 m mest, hæð 1,02 m. Vestar stendur enn næstum sívalt tré, 1,54 m frá norðurhlið, 0,60 m frá gafli, þvm. N-S 0,09 m, A-V 0,10 m, hæð 0,93 m.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.