Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Page 8
24
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
verið komið fyrir við veggina til að bera stafi eða syllur; smærri steinar
kunna að hafa verið notaðir til að styðja við tré eða fylla í eyður; einnig
gæti mold hafa verið mokað upp að Qölum til stöðvunar eða þéttingar.
Á móti því mælir að óvíða voru bekkirnir fylltir af mold, eða raunar
aðeins í norðvesturhorni hússins, auk þess verður að hafa í huga að
allsstaðar virðist hafa loftað undir bekkhliðarnar. Loks er svo að sjá að
mikið af mold og grjóti sé venjulegur úrgangur úr byggingarefni tótt-
arinnar, sem hefur verið flutt þangað, en ekki kastað út yfir mannhæð-
arháa veggina. Þetta er einkum ábcrandi við austurstafninn og þar var
einnig mest af þessu efni, sem lá þar í óhlöðnum bing, sem hálffyllti
pallinn.
Skal nú litið nánar á þetta. Til hægðarauka verður húsinu nú skipt í
stafgólf. 1. stafgólf er vestan stoða A.N. I og A.S. I, 2. stafgólf á milli
A.N. I og A.N. II að norðan og A.S. I og A.S. II að sunnan o.s.frv.
5. stafgólf er þá endi hússins austan við A.N. IV og A.S. IV.
í 1. stafgólfi að norðan var bekkurinn að mestu fylltur af mold og
grjóti. Par virtist bekkhliðin hafa náð upp í 0,91 m hæð, en moldin
óvíða hærra en í 0,80 m og hæstu steinar í 0,89 m hæð. Ekki voru neinir
stoðbærir steinar úti við vegginn í þessu stafgólfi, en rétt austar en á
móts við A.N. I og þá raunar í 2. stafgólfi er vænn ferkantaður steinn
á gólfinu út við vegginn, fjarlægð frá vesturþili 1,50 m, hæð 0,76 m.
Austast í sama stafgólfi er annar stæðilegur steinn út við vegginn, 2,27
m frá vesturþili, hæð 0,80 m. í 3. stafgólfi er vænn steinn (stærð
0,26 x 0,20 m) út við vegg, 2,65 in frá vesturþili, hæð 0,80 m. Ofan
á honum lágu lausir smásteinar, sem náðu upp í 0,87 m hæð. Austar í
sama stafgólfi er stór steinn út við vegg (stærð 0,32 x 0,25 m) fjarlægð
frá vesturþili 3,15 m, hæð aðeins 0,71 m, en ofan á honurn lá minni
steinn, sem nær upp í 0,84 m hæð. Rétt austar er enn stafbær steinn,
3,51 m frá vesturþili, hæð 0,80 m, og 0,30 m austar er enn steinn í sama
stafgólfi, sem nær 0,87 m hæð. í 4. stafgólfi er steinn út við vegg, 0,50
m langur A-V og 0,30 m breiður, fjarlægð frá vesturþili 4,29 m, hæð
0,78 m. Ofan á honum liggja lausir steinar, sem ná upp í 0,86 m hæð.
í 5. eða austasta stafgólfi er hlaðið nokkrum lögulegum steinum út við
vegg rétt austan við A.N. IV. Hæst ber ferstrendan stein, stærð
0,16 x 0,14 m, 5,10 m austur frá vesturþili, hæð 0,83 m. Hann virðist
vera allstöðugur. í norðausturhorninu er loks steinn, stærð 0,36 x 0,28
m, hæð 0,84 m.
Hér hafa verið taldir steinar þeir við norðurvegg, sem einir virðast
hafa verið látnir þar með ráðnum hug, ætlaðir til að bera stafi, syllu eða
því um líkt. Hæð þeirra er mest 0,87 m, og bcr að hafa í huga að hæstu