Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Side 13
KÚABÓT í ÁLFTAVERI I
29
eftir. Pað eitt er með fasttroðinni gólfskán, því hallar lítið eitt til aust-
urs, einkum mjóa gólfinu (sjá síðar). Hæð austur við dyr er 0,63 m, 2
m vestar 0,85 m, rétt vestan við hitt hús 0,96 m og vestast um 0,90 m.
Á þverveginn er gólfið hæst um miðbikið, en litlu lægra út við jaðrana.
Til beggja hliða við gólfið eru hærri pallar, en misháir og víðast ósléttir,
ná allt að 1,33 m hæð út við veggina, en lægri við miðgólfið. Par eru
óreglulegir stallar eftir endilöngu húsinu, 0,15-0,30 m háir; þeir eru
ekki hlaðnir. Hér verða þessir hliðarpallar kallaðir set; efni þeirra er
mjög svipað innihaldi pallsins í A, gæti verið afgangur af byggingarefni
því, sem notað var í veggina.
Ekki er allt miðgólfið jafnbreitt. Austast á nærri 3 m kafla er það
aðeins 0,80-0,90 m breitt, svipað og dyrnar til A og eins og framhald
af þeim. Eins og fyrr segir sáust ekki ummerki eftir dyrabúnað né
þröskuld austur við kampinn og hvergi vestar vottaði fyrir menjum um
þröskuld á gólfinu. Vestan við þrönga kaflann breikkar gólfið til beggja
hliða, en setin mjókka að sama skapi. Þar er gólfið 1,30—1,40 m breitt
og helst jafnbreitt alla leið vestur að þverþilinu.
Hvergi var eldstæði á gólfmu; gólfskánin var 0,05—0,12 m þykk,
sömu gerðar og í A, harðtroðin, gráleit og laus við kolamylsnu eða
aðrar eldmenjar. Undir henni voru leifar af eldri gólfum og tók að bera
á kolamolum í þeim.
Vestan við húsið B, á milli þess og C, hefur verið þil svo sem fyrr
var sagt. Þar sem þilið var áður er þverskorið fyrir enda beggja setanna.
Þau eru þar mest úr mold og torfleifum og geta því aðeins verið svo
brött sem raun ber vitni að þau hafa fallið upp að þili. Þó þessir stallar
séu brattir eru þeir þó svo máðir að för eftir einstakar fjalir eða tré verða
ekki greind og eru því ekki til vitnis um gerð þilsins. Endi syðra sets
teygist nokkuð út á gólfið meðfram þilinu. Þetta er aðeins nrjó mön,
sem kynni að vera undan bekk, en verður annars ekki skýrð. Norður-
endi þessarar manar verður 1,68 m frá suðurvegg. Að norðan eru
steinar austan þils og framan setbrúnar allt að 1,60 m frá norðurvegg og
þar eð tóttin er hér 4,43 m víð, verður bilið á milli steina þessara og
manarinnar að sunnan 1,15 m. Þetta er mesta hugsanlega vídd þilgátt—
arinnar og jafnframt mesta vídd dyra, sem hafa verið þarna á þilinu, en
trúlegt er að dyrabúnaðurinn hafi þrengt nokkuð að, svo að dyrnar hafa
líklega verið eitthvað innan við 1 m að vídd, en nákvæmara verður
þetta ekki ráðið af ummerkjum í gólfi.
Ekki fer á milli mála að þak þessa húss hefur hvílt á fjórum stafa-
röðum; útstöfum við báða veggi og innstöfum í frambrúnum setanna
eða í jöðrum gólfsins, þar eð neðri cndar flestra þeirra stóðu enn á