Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Síða 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Síða 14
30 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS sínum stöðum grafnir niður í gólfið og náðu allt að 0,50 m upp úr því cn þar hafði fúnað ofan af þeim. Nú skal lýst stöfum og ummerkjum eftir þá, fyrst norðan gólfs og þá við norðurvegg, síðan sunnan gólfs og loks við suðurvegg ævinlega mælt á miðjan staf. Fjarlægðir verða taldar frá vesturþili í stefnu austur. Það er sérkennilegt um innstafina að vestan mjóa gólfsins, sem fyrr var frá sagt, standa syðri innstafir á kafla helmingi þéttar en hinir nyrðri. I eftirfarandi lýsingu verða stafir í B merktir þannig: BN norðan gólfs og BS sunnan þcss, innstafir t.d. BNi og BSi og útstafir BNú og BSú. Auk þess verður þeim gefin raðtala. Hugsaðir stafir í þili fá þá töluna 0 en síðan hækkandi til austurs. Raðtölur innstafa sunnan gólfs eru þó lítið eitt frábrugðnar. Þar er röðin 0 I, la, II, Ila, III, IV o.s.frv. Þar eru Ia og Ila stafir í rniðjum stafgólfunum og er það rætt síðar. Eins og fyrr sagði sáust ekki ummcrki eftir innstafi (né aðra stafi) í vesturþilinu, en 1,95 m austar stcndur stafbútur í gólfinu, hér merktur BNiI; hann er 0,47 m norðan við miðlínu og 1,60 m suður frá norður- vegg. Stafurinn er ferskeyttur 0,12x0,10 m í þverskurð, snýr lcngri hlið næstum rétt að gólfi og er þó lítið eitt snúinn til vesturs. Næsti stafur í röðinni, BNiII er 1,45 m austar eða 3,40 m frá vesturþili, 0,46 m frá miðlínu og 1,64 m frá norðurvegg. Stafurinn er næstum fer- skcyttur, cn þó ávalur á austurhlið, þverskurður 0,12x0,08 m, snýr langhlið rétt að gólfi. Enn er stafur í sömu röð, merktur BNiIII, 1,75 m austar eða 5,15 m frá þili, 0,51 m frá miðlínu og 1,53 m frá norður- vegg. Þessi stafur er sljóferskeyttur, þvermál 0,12x0,08 m og snýr langhlið rétt að gólfi. Næsti stafur, merktur BNiIV er 1,63 m austar eða 6,78 m frá þilinu, 0,55 m norðan við miðlínu og 1,45 m frá norður- vegg. Stafur þcssi er ávalur eða sporöskjulagaður í þversnið, 1. 0,13 m þvm. 0,09 m, snýr samhliða gólfi. Stafaröð þessi, sem hefur verið tiltölulcga bcin cndar hér og er ekki beint framhald hcnnar austar, en enn er stafbútur í gólfi, merktur BNiV, 1,72 m austar eða 8,50 m frá þili. Hann er aðeins 0,24 m frá miðlínu en 1,76 m frá norðurvegg. Stafur þessi er óreglulega ferstrend- ur, ótelgdur og snýr hvassri brún að gólfi, þvermál 0,14 m N-S og 0,12 m A-V, hann náði nú 0,25 m upp úr gólfinu. Á bak við þcnnan staf var skorðaður vesturendi trés, scm náði þaðan rétt austur að dyrakampi. Austurendi þcss var laus nú, en kann áður að hafa verið skorðaður bak við ferskeyttan hæl, sem stendur í gólfinu 0,34 m norðan við miðlínu og 2,56 m austan við BNiV. Hællinn er aðeins 0,04 x 0,04 m í þvermál og er því í rýrasta lagi og hefur alls ekki verið stafur undir brúnás, en austur við kampinn er skorðaður steinn, scm vel gæti verið undan staf,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.