Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 10
14
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Brennu-Njáls sögu sem kunnugt er. Með áðurnefndri ritgjörð Jóns „Um
fornmanna hauga nokkra, kumla og dysjar á Islandi og í Norvegi" í AM
434 fol., bl. 42, er nú fest snið af öxi sem klippt er út í blað. A hægri hlið
blaðsins hefir Jón skrifað, fært hér til nútíðarstafsetningar:
Skarphéðins öxi
Ectýpus Remigiu [gerð Rimmugýgar]
Ad caput de Armatura veterum ]í kafla um vopn fornaldarmanna].
NB. mér er sagt fyrir sann, og ef eg rétt minnist af Páli lögmanni Vída-
lín, að sú Remm-eggja (perperam vulgö multis Remigia, latina formá -giæ
[ranglega kölluð af alþýðu Rimmugýgr, latínumynd -giæf) er í Skálholti var og
sú öxi sem var í Víðidalstungu, var eftir gjörð, hafi aldrei verið gjörð eftir
þeim rétta original, sem var Skarp-heðins öxi, heldur eftir því sem biskup
Brynj(úlfur) og aðrir honum þá samatíma menn innmynduðu sér, nefni-
lega að fingera [gjöra] alla hluti stærri og fullkomnari á fyrri öldum eftir
almennri opinion [ætlun], hjá flestu fólki nálega, með hverju þeir meina sig
gjöra vel, að auka venerationem antiqvitatis [fortíðardýrkun].
Til hliðar skrifar Jón:
Miklu minni var Víðidalstungu öxin, að vísu þriðjungi, og nokkuð bjúg-
ari. Eg meina þetta blaðsform, fetill og skapt ei einnen litlu rýrara en þetta.
Vinstra megin á blaðinu er þessi lýsing með annars manns hendi en Jóns
Ólafssonar:
Ectypus, Dimensio og Descriptio Remigiu [gerð, stærð og lýsing Rimmu-
gýgar]
Skaftið er á lengd frá auganu 3 íslenskar al. 3 fengið úr rauða greni,
nærri sívalt, og ei digrara en eg get tæpt saman þumal- og -vísifingurs
gómum. Tvær íbjúgar járn spengur ganga frá auganu og uppá skaftið, að
lengd rúmt qvartel og alin og ná ei ört saman hverugu megin, negldar
með járn nöglum með höfðum sem á sívölum látúns bólum. Blaðið upp að
fetanum er ei þykkra en svarar meðalmáta íslensku bókaspjaldi, og er nú
mjög orðið eins þykkt, eggin og sjálft blaðið; þó má sjá, að tvíeggjuð hefur
verið fremri hyrnan nær upp að feta; fetinn sjálfur og augað er nokkuð
þykkra.
Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig axarhlutarnir eru merktir
vinstra megin á blaðinu: