Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 189
ÞÓR MAGNÚSSON
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
OG ÞJÓÐMINJAVÖRZLUNA 1994
Þjóðminjaráð. Nýtt þjóðminjaráð var skipað í kjölfar breytinga á þjóðminjalögum 1. júlí
1994. Er Sturla Böðvarsson alþm. formaður, en aðrir eru: dr. Helgi Þorláksson dósent, tilnefnd-
ur af Háskóla Islands, Ragnar Sigurðsson kennari, tiln. af Kennarasambandi Islands og Hinu
íslenska kennarafélagi, Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri, tiln. af Félagi ísl. safnmanna og Sig-
urjón Björnsson fv. borgarfulltr., tiln. af Sambandi ísl. sveitarfélaga. Fundi ráðsins sitja einnig
fulltrúi starfsmanna Þjóðminjasafns, Kristín H. Sigurðardóttir, Þór Magnússon þjóðminja-
vörður og Lilja Árnadóttir safnstjóri. Varamenn eru á sama hátt: Jóna Ósk Guðjónsdóttir bæj-
arfulltrúi, dr. Margrét Hermanns-Auðardóttir fornleifafræðingur, dr. Árni Björnsson ritstjóri
Islenskrar þjóðmenningar og Margrét Hvannberg kennari.
Breytingar á starfsliði safnsins urðu þær helztar, að Þór Magnússon tók á ný við embætti
þjóðminjavarðar hinn 1. júní eftir tveggja ára rannsóknarleyfi og lét Guðmundur Magnússon
jafnframt af starfi, en hann hafði gegnt embættinu þennan tíma.
Þór vann í leyfi sínu að rannsóknum á íslenzkum gull- og silfursmiðum og verkum þeirra
á vegum Iðnsögu Islendinga.
Elsa E. Guðjónsson deildarstjóri textíl- og búningadeildar lét af störfum fyrir aldurs sakir
1. júlí. Hafði hún starfað í safninu frá 1964, fyrst í hlutastarfi en frá 1968 í fullu starfi og frá
1985 sem deildarstjóri. Ekki var ráðið að sinni í stöðu hennar, í og með vegna viðgerðar
hússins og því mikilla erfiðleika í safnstörfum öllum. Elsa hafði verið í starfsleyfi um eins árs
skeið, frá í apríl 1993, sem síðan var framlengt til 1. júní.
HúsnæÖismál og viðgerðir
Ný byggingarnefnd var skipuð á árinu og eiga nú sæti í henni Sturla Böðvarsson alþm.
formaður, Steindór Guðmundsson forstj. Framkvæmdasýslu ríkisins og Örlygur Geirsson
deildarstj. í menntamálaráðuneytinu. Arkitekt viðgerða safnhússins var sem áður Ögmund-
ur Skarphéðinsson.
Ekki var enn á árinu ákveðið um hverja stefnu skyldi taka til að leysa húsnæðismál safns-
ins, hvort byggja skyldi sérstakt sýningarhús, eins og fyrrverandi byggingarnefnd hafði lagt
til, eða aðrar leiðir valdar, sem einnig þóttu koma til álita. En hafizt var handa um umfangs-
mikla viðgerð safnhússins um sumarið og lauk þeim áfanga urn haustið, þó mun síðar en
áformað hafði verið.
Skipt var um alla glugga í húsinu, steypuskemmdir brotnar úr veggjum og steypt í á ný,
loks var húsið steinhúðað á ný eins og verið hafði í upphafi. Þá var skorsteinn brotinn af og
skipt um lyftubúnað til að taka mætti lyftuhúsið ofan af lyftustokknum.
Allt þetta olli afarmiklu raski í safninu, hávaða vegna múrbrota, miklu ryki hvarvetna og
ónæði og var í reynd oft á tíðum engin vinnuró neins staðar í húsinu, enda raskaði þetta
ástand mjög aliri vinnu starfsfólks.