Alþýðublaðið - 05.02.1921, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Séð |rá fi, C og 9, bak vii grímtma.
Kannské vér reynum að komast á þing,
þó kunnum þar lítið að vinna
nema að vernda’ okkar háleita hring
fyrir hlutsemi þrælanna hinna.
Bolsara þurfum að berja í hel
og blinda svo »skrælingja-þýið«!
Vér látum þá fáfróðu lyfta oss vel
löggjafarþings inn í vígið.
Því vinnukraft þeirra vér verðum að fá
með valdi að laganna dómi.
Já, dálítið herða á hnútunum má
og höftunum, — það verður sómi.
Þá byggjum vér stórvirki, hallir og hof
fyrir heildsala og dýrðlinga-bandið.
En viðurkenningu og verðskuldað lof
oss veita mun þjóðin og landið.
Landsverzlun skulum vér buga á brott,
sem oss bindur í harðsnúna viðja.
En að stórsalahringurinn geri það gott,
það göfugir einhuga styðja.
Auður er máttur og allsherjarvald,
auður er jarðarlífssæla.
Skrælingjans örbyrgð er glópskunnar gjald
sem greiðir oss leið til að — næla.
Samkeppnin lifi, að sókn verði frjáls
vér segjum, þá skrælingja blekkjum,
þar til að snaran þeim hert er um háls,
því H. I. S. betnr vér þekkjum.
Því skulum vér reyna’ að rekja þess spor
og ráðunum ná yfir skrílnum,
þvf: »heildsalasjálfstjórn« er hugsjónin vor,
í harðstjórnareinveldisstílnum.
Taglhnýtingur.
er ekki afnumið, er: Kinir ráð-
andi menn í þessu landi hafa lagt
peningamælikvarðann á atkvæðis-
rétt manna um opinber mál og
á mannréttindi yfirieitt, og því
verður ekki neitað. Þeir hafa bsin-
iínis verið hræddir við að veita
almenningi fult frelsi.
Hver þorir nú að standa
frammi fyrir kjósendum sfnum og
mæla órétti þeim bót, sem Is
leczkum borgurum er ger með
fátækralögunum. Enginn. En hvað
gera þeir svo ef þeir skyldu slys-
ast inn á þing. Ekkert. — Allir
nema fulltrúar Alþýðufiokksins,
því að þeir einir hafa dug og
dáð til að vernda málstað hinna
réttlausu. X
Xðsningarréttnr.
Futl réttindi ættu að vera vöggu-
gjöf hvers einasta manns. Hvers
vegna? Fyrst og fremst vegna
þess, að með því eru allir tryggir
og einnig eigi síður sökum þess,
að mannréttindi eru heilagur grip-
ur, er ætti að vera höfuðsök að
skerða. En hvað gera svo hinir
ráðandi stjórnmálamenn vorir ?
Þeir svara með fátækraiögunum
og kosningarréttarákvæðunum í
sjálfri stjórnarskránni. Hverja mót-
báru má færa fram gegn því, að
menn fái kosningarrétt 21 árs
gamlir? Enga. Hversvega er kosa-
ingarréttur bundinn við það, hvort
fjárhagsástæður manna eru góðar
eða vondar? íslenzka þjóðin heimt-
ar svar. En stjórnmálamennirnir
rumska ekld af afturhaldssvefni
sínum. Eða þá að þeir hafa svo
mikið að gera í svipinn við að
smíða nýja vörutolia og aðra
hlekki á hina vinnandi menn þjóð-
arinnar, að þeir mega ekki vera
að sinna hrópunum um rétt.
Viðurkenning mannréttindanna
er það minsta sem fsienzka þjóðin
getur heimteð af fuiltrúum sfnum
á þingi. En hingað tii hafa þeir
hundsað viija hennar.
íslenzku alþýðumenn! verið ekki
lengur að gera yður tálvonir um
umbætur frá þeirra hálfu, sem
altaf hafa brugðist yklcur.
Sendtð ykkar menn inn á þing,
hér 1 Reykjavík sem annarsstaðar.
Látið þessar kosningar verða
giæsilegan sigur ykkar góða máls-
staðar. Hinn fyrsta af langri röð
sigurdáða í framtíðinni.
Kjósið B-iistann 1 S.
Stefo yi-listans.
Skopleikari lék listir sínar og
fólkið klappaði. Alt í einu varð
hann alvarlegur og sagði: Húsið
brennur. Fólkið klappaði. Hann
varð enn alvarlegri og sagði;
Eg segi ykkur satt, húsið brenn-
ur. Fólkið klappaði. En húsið
var að brenna.
Einar Kvaran hefir verið skop-
leikari í íslenzkum stjórnmál-
um, en alt í einu verður hann
alvarlegur og segir: Eg hef stefnu.
Fólkið hlær. Hann verður enn
alvarlegri og segir: Eg hef stefnu,
Fólkið hlær. En Einar Kvaran
hefir stefnu.
Sá er munurinn á þessurn
tveimur skopleikurum, að sá
fyrri varar við húsbrunanum,
en Einar Kvaran vill láta húsið
halda áfram að brenna. Það
má líkja þjóðfélaginu við brenn-
andi hús. Ástandið er ógurlegt
og úr þvi verður að bæta.
Hvernig? Einar Kvaran hefir
birt sína stefnu. Hún hljóðar