Alþýðublaðið - 10.02.1921, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.02.1921, Blaðsíða 1
1921 titsvarslækkmiin. Ems og skiljanlegt er, vatcti greinin um utsvörin, í blaðinu í gaer, mikla eftirtekt. Virtist svo sem fiestir væru blaðinu sammála ma það, að sjálfsagt væri að þess- ar 300 þúsunö krónur, sera út- svörin lækka um í ár, frá þvf f fyrra, yrðu að eins til hagsbóta fyrir lægri gjaldendurna. Það er Iíka margt, sem mælir með þvf. ' Fyrst og fremst það, að tekjur alraennings eru alment svo lágar, miðað við það verð, sem er á öllum iífsnauðsynjum, að það má segja, að þar sé eng inn afgangur, enda sjálfsagt, að nauðsynleg útgjöld bæjarfélagsins séu tekin með útsvöruia af þeim, sem hafa þúsundir og tugi þús- unda í árstekjur, ea ekki reitt saman af þeim, sem minstar hafa tekjuroar. Öanur veigamikil ástæða til þess, að láta íækkunina koma eíngöngu fram á lægstu gjaldend unum er þessi: Sé lækkunin látin koma jafnt niður á öllum útsvör- uaum, nemur hún að eins sjötta pju’ti, en það má segja, að engan rauni um það, og þá að minsta kosti ekki hærri gjaldendurna. Séu úfcsvör hærri gjaldendanna aftur á móti látin haldast, getur Iækkunin á lægri útsvörunum orðið svo að um muni. I gær var sýnt fram á það hér í blaðinu, að með þessari 300 þús. króna lækkun, væri hægt að láta öll utsvör frá 500 kr. upp undir 1000 kr. lækka um þriðja 'hluta, og öll útsvör undir 500 br. ,um meira en helming, eða 225 'kr. útsvar niður í 100 kr., 45 kr. utsvar niður í 20 kr. og önnur úísvör f samræmi við þetta. — Væri lækkunin eingöngu gerð á þeim útsvörum, sem eru undir 500 krónum, væri hægt að lækka útsvar þessara ca. 4750 gjaldenda, sem hafa undir 500 br. útsvar, piður í þriðja hluta af þvf, sem Fimtudaginn 10. íebrúar. þau voru f fyrra, þannig, að sá sem hafði 450 kr. hafi 150, sá sera hafði 60 kr. hafi 20 kr., og 30 kr. verði 10 kr. o. s. frv. En nú er eftir að vita, hvort það eru nógu margir í niður- jöfnunarnefndinni, sem hafa hug á því, að vinna fyrir almenning. En það kemur nú í Ijós á sínum tíma. li áagiim 09 Ypn. Kreikja ber á hjólreiðum og bifreiðum eigi sfðar en kl. 5. í sjonnda himni segir Vísir að Alþýðublaðið sé yfir kosninga- sigrinum. Það er óhætt með það, að Alþbl. er áuægt yfir þvf að Alþfl.Iistinn skyldi fá Ianghæzta atkvæðatölu, Ekki sízt þegar það er athugað, að andstæðingarnir voru búnir að telja sér trú um, að listinn yrði lægstur eða næst lægstur að átkvæðatölu. Sterling fór frá ísEfirði í gær- dag, á leið til Rvfkur. Farþegar eru eins margir og með nobkru móti gátu rúmast. í fyrradag stóð í Vísi að jafn- aðarmenn hefðu alt eins komið manni að nú við kosningarnar, þó allir hinir „flokkarnir" hefðu verið sameinaðir á móti, og þó haft rúm 500 atkvæði umfram. En í gær spyr Vísir, hvort Al- þýðublaðið haldi að það geti talið flokksmönnum sínum trú um að B listinn hefði fengið hærri atkvæðatölu, ef andstæðingar hans hefðu verið sameinaðir á einn lista. Satt að segja heldur Alþbl. að það þurfi ekki að „telja nein- um trú“ um þetta, því hvert mannsbarn veit, að ómögulegt hefði verið að búa til lista, sem allir þeir kjósendur, sem nú kusu 33. tölubl. Börn ocg tengdabörn ekkju- frú C. Zimsen pakka hér með öllum, er auðsýndu samúð og kærleika við fráfall hennar og útför. A, C og D, hefðu getað samein- að sig um að kjósa. Hefði ein- hvern þessara Iista vantað, hefði nokkur hluti þeirra manna, er kusu hann, kosiö B iistann. Þann- ig hefði t. d. minst heimingur af þeim, sem kusu D listann, kosið iista Alþýðuflokksins, og er senni- legt að Vísir sansist á þessu þegar hann jafnar sig eftir kosn- ingaósigurinn. Lanðseihkasala á síld. Á framhalds þíugmálafundi, sem halö- iiin var á mánudagskvöldið á ísa- firði, var samþykt tillaga um ísndsdnkasölu á sfld. Þess skal getið, að síldarútvegsmenn mæltu mjög eindregið með tillögunni, Hvað segir Vísirf í mannjöfnnð fer Morgunbl. í gær, og ber þá saman þing- mennina nýju, þá Jón Baldvinsson og Jón Þorláksson. Segir biaðið, að Jón Baldvinsson muni aidrei fá neina forustu á þingi, því að hann skorti alla foringja-hæfileika, og mátt til þess, að safna utan um sig fylgiliði. Blaðið gleymir hér tvennu: að Jón Baldvinsson, sökum foringja-hæfileika sinna, er nú þegar foringi öflugasta flokks- ins í höfuðstaðnum, og að um manninn, sem það er að bera hann saman við, verður það sfzt af öllu sagt, að hann hafi lag á „að safna utan um sig fylgiliði“, þó Mgbl. geti vafalaust tilfært honum ýmislegt annað tii hróss. Tombólunefnd Templara er beðin að koma á fund í Templ- arahúsinu kl. 8 í kvöld.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.