Alþýðublaðið - 16.02.1921, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.02.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið öefið «it mé A«Iþýöia.flol2lcaTOm- 1921 Miðvikudaginn 16 febrúar. 38. tölubl. larðarför Benedikts gullsmiðs Ásgrimssonar fer fram næsta fimtudag (17. febr.), og hefst með hús- kveðju á heimili íians, á Bergstaðastræti 19, ki. I e. h. :: :: Börn og tengdafólk. :: :: Alþingi. Pingsetning fór fram í gær k!. i og hófst með guðsþjónustu í dómkirkjunni. Séra Arni Björnsson, prófastur í Görðum, sté í stólinn. Eftir guðsþjónustuna var tekið ti! þingstarfa, og var þá fyrst fyrir að athuga kjörbréf hinna nýkosnu þingmanna Reykjavíkur. Hafði komið fram kæra á síðustu stundu, frá einhverjum Kristjáni Kristjáns* syni í Hildibrandshósi. Kæruatrið- in voru: Að kosning á manni í stað Sveins Björnssonar hafi verið dregin of lengi og fram yfir nýjár. Að aukakjörskrárnar séu ekki bygðar á íöglegum heimildum. Að kjördeildum hafi verið lok- að meðan óslitinn straumur kjós- énda var á kjörstað. Að á kjörskrárnar hafi vantað ýmsa, sem þar áttu að vera, og ýmsir hafi staðið þar, sem ekki áttu þar að vera. Sigurður Stefánsson hafði fram- sögu fyrir hönd fyrstu kjördeildar, og mælti með þvf, að kosningin yrði ekki gerð ógild fyrir þessar sakir. Benti á að sannanir vantaði íyrir sumum atriðunum og einnig mundu þessi atriði ekki hafa haft nein áhrif á úrslit kosning- ,anna. Karl Einarsson (framsögum. 2. kjörd.) skýrskotaði til ræðu næsta manns á undan og lagði til að kosningin yrði tekin gild. Ben. Sveinsson hélt langa ræðu og mælti fast með því, að ógilda kosninguna. Forsætisráðherra sýndi fram á, að ástæðulaust hefði verið að láta kjósa mann í stað Sv. B. fyr en gert var, enda mæ!i lög svo fyrir, að kosning þurfi ekki fram að fara fýr en „þörf þykir". Jakob Möller taldi ástæðulaust að ógilda kosninguna, þar eð úr- slit nýrra kosninga mundu ekki breyta neinu frá því sem er. Sig. Eggerz kvað mikla galla á kosningunni, og hinar mestu lög- leysur hefðu átt sér stað. Sagðist hann vera glaður yfir því, að kæran hefði kotnið fram. Kvað kjörskrárnar alveg ólöglegar (Senni- legá vegna þess, að bæjarstjórnin lét þá njóta réttar síns, sem sam- kvæmt stjórnarskránni áttu að standa á kjörskrá). Hélt þingm. síðan allianga „moral" prédikun í likræðuformi, og vildi láta gera ógilda kosninguna. Beindi hann máli sínu einkum ti! Jakobs Möll- er og benti á það, að hann væri nú f kosningabandalagi við stjórn- ina. Þá kom fram tillaga um að skera niður umræður um málið. Tillagan feld með 19 :18. Bjarni frá Vogi vildi ekki íáta það uppi hvort hann greiddi at- kvæði með eða móti tillögunai. Stóð helzt upp til þess að þakka þeim sem kærði fyrir tilvikið. Vildi hann láta stórsekta nefnd þá er seroja á kjörskrá, helzt 20 þús. kr. I Jón Þorláksson skýrði frá af- stöðu bæjarstjórnar til málsins, og sýndi fram á það hver óhæfa það hefði verið, ef stórum hluta manna, sem að lögum áttu kosningarrétt þegar kosning fór fram, hefði ver- ið bannað að kjósa. Þá töluðu: J. MölSer aftur, Gunnar á Selalæk, sem kvað á- stæðulaust að ógilda kosninguna, þó á henni væru stórir ágallar, þar sem nýjar kosningar mundu ekki breyta núverandi úrslitum; Bjarni frá Vogi svaraði J. Þorl.; Sig. Stefánsson kvaðst ekki af umræðunum hafa séð, að nokkur ástæða væri til að ógiida kosn- inguna; Bened. Sveinsson. ræddi aftur um málið frá sínu fyrra sjónarmiði; Halldór Steinsson vildi láta ógilda kosninguna, þó nýjar kosningar hefðu engin áhrif á núverandi úrslit, vegna þess að hér væri um stóriagabrot að ræða. Ben. Sveinssoa hélt síðustu ræð- una. Þá voru greidd atkvæði um tillögur þær er fram höfðu komið og gréiddu 9 atkv. með því að fresta málinu, en 29 á móti. Þá var kosningin í Reykjavík sam- þykt með 25 atkv. gegn 6 og loks var samþykt með 29 atkv. gegn 4, að fela stjórninni að ávita bæjarstjórnina. Umræðurnar um þessa kosninga- kæru sýna annars ágætíega, hve mjög sumir þingmenn hafa gam- an af því að teygja þingtímann með þýðingarlausum vaðli, því á ræðunum var yfirleitt fremur lítið að græða — þunt, þynnra, þynstl Sumir héldu nú reyndar að tilætl- unin væri sú, að draga þingtím- ann svo mjög, að ekki yrði kosið í þingembætti í gærkvöldi, vegna þess, að kosningarnar væru ekki nógu veí undirbúnar. En kannske er enginn fótur fyrir þessuf KösnÍHgar. Forseti sameinaðs þings var kosinn: Jóhannes Jóhannessón bæj- arfógeti með 22 atkv. — Auðir seðlar voru 13. Sig Ég'gerz fékk 2 atkv. og Bjarni frá Vogi 1. Varaforseti var kosinn: Sveinn Ólafsson með 26 stkv. Björn Krist- jánsson fékk 1 atkv. og auðir voru 11 seðlar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.