Fréttablaðið - 09.07.2001, Side 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
9. júlí 2001 MÁNUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
ERLENDAR SKULDIR RÍKISSJÓÐA
f HLUTFALLI AF HEILDARSKULDUM
Erlendar lántökur ríkissjóðs umfram
afborganir voru 8 milljarðar króna árið
2000. Heildarfjárhæð erlendra lána
hækkaði um 25 milljarða í fyrra
vegna lántöku, vaxtagreiðslna og
gengistaps. Hlutfall erlendra lána af
heildarskuldum nokkurra ríkissjóða
var svona árið 1999:
Heimild: Lánasýsla ríkisins
KEFLAVfK
Reykjanesbær fær tæplega 11 milljóna
króna arð frá Brunabótafélaginu í haust.
Eigendur
Brunabótafélagsins:
Skipta með sér
150 milljónum
SVEITASTJÓRNIR Sveitarfélögin 86
sem eiga saman Eignarhaldsfé-
lagið Brunabótafélag íslands
(EBÍ) ætla að skipta með sér um
150 miljónum króna sem ágóða-
hlut 15. október í haust.
Að sögn Valdimars Bragasonar
sem sæti á í stjórn félagsins er
þetta í f jórða skipti sem eigendum
félagsins er greiddur ágóðahlutur
á þennan hátt. Fyrsta greiðslan
nam 110 milljónum króna, sú
næsta 130 milljónum og sú þriðja
140 milljónum. Samtals nema
greiðslurnar því 530 milljónum á
fjórum árum.
Upphæðin er ætluð til bruna-
varna í viðkomandi sveitarfélagi
en Valdimar segir að því sé þó
ekki fylgt strangt eftir enda séu
útgjöld hvers sveitarfélags til
þess málaflokks mun hærri en
nemur greiðslunni frá EBÍ.
Sem dæmi um greiðslur úr
sjóðnum að þessu sinni má nefna
að Akureyri fær 16,3 milljónir
króna, Kópavogur 13,0 milljónir
og Reykjanesbær fær 10,7 millj-
ónir króna, en þetta eru stærstu
hluthafar félagsins.
Að því er Valdimar segir eru
heildareignir EBÍ um fjórir millj-
arðar króna. ■
• Rússland:
Mótmæla
vinnulöggjöf
moskva. ap. Andstæðingar og
stuðningmenn nýrrar vinnulög-
gjafar efndu til mótmæla í Rúss-
landi þegar hún var lögð fyrir
neðri deild þingsins. Um 1.000
manns söfnuðust fyrir utan þing-
húsið en neðri deildin samþykkti
frumvarpið í fyrstu umferð. Lög-
gjöfinni er ætlað að skilgreina
réttindi og skyldur vinnuveit-
enda, launþega og verkalýðsfé-
laga. Andstæðingar hennar segja
að lögin skerði réttindi launþega
og eyðileggi verkalýðsfélög
landsins. Andstæðingar kölluðu
Vladimír Pútín, forseta, „blóð-
BAKTAL
Eldri kona og andstæðingur vinnulöggjaf-
arinnar reynir að rökræða við rússnesku
óeirðalögregluna sem snýr við henni baki.
sugu“ vegna breytinganna á
vinnulöggjöfinni sem á rætur
sínar að rekja til tíma Sovétríkj-
anna. ■
Afturhvarf til fortíðar:
Vaxandi áhugi
á miðaldamat
matur Svo virðist sem áhugi ís-
lendinga á gömlum mat og matar:
venjum fyrri alda sé að aukast. í
það minnsta hefur svokallað mið-
alda-hlaðborð notið vaxandi vin-
sælda í Skálholti en það er kennt
við Þorlák biskup helga. Pétur
Pétursson rektor Skálholtsskóla
segir að fyrir utan rannsóknir
sem gerðar hafa verið á neyslu-
venjum fyrri tíma séu til gamlir
matseðlar sem oft voru tengdir
lækningabókum.
í forrétt í miðaldahlaðborðinu
er byrjað á krydduðu hunangs-
rauðvíni að hætti Hippocratesar,
harðfiskur, sjávarsöl og brauð-
hleifur. f aðalrétt er m.a. rjúpna-
súpa, ferskur silungur með
hvannarlaufi, hlóðarsteiktur
svartfugl í höfðingjasósu, brasað
lambakjöt og gróft brauð. í eftir-
rétt er t.d. möndlubaka, fjalla-
grasakex, fjósaostur, flautir,
möndlur, döðlur og rúsínur og
mjöður Þorláks helga. í þá daga
var heitið mikið á Þorlák tii að
brugggerðin heppnaðist. ■
Ástrík sambönd lykill að
hamingju á miðjum aldri
Rannsókn bandarískra vísindamanna á lífshamingju miðaldra fólks gefur til kynna að góð, náin
sambönd séu einn helsti lykillinn að hamingjunni.
heilsa. Einn af leyndardómunum á
bak við lífshamingjuna þegar
maður hefur náð miðjum aldri, er
að hafa átt í nánu ástúðarfullu
sambandi sem hefur verið í góðu
jafnvægi. Réttur
skammtur af róm-
antík þarf einnig
að hafa komið við
sögu. Þetta kemur
fram í niðurstöð-
um bandarískrar
rannsóknar þar
sem fylgst var
með fjölda para á
yfir 25 ára löngu
tímabili. Þættir
eins og gott sjálfs-
álit og fyrri líf-
reynsla, sbr. fyrs-
ta kynlífsreynsla
einstaklinga og
hvort þeim leið vel
í skóla, geta einnig
skipt sköpum.
„Það fer ekki á
samkvæmt
í rannsókninni
kom m.a.
fram að konur
með stranga
trúarsannfær-
ingu voru
hamingjusam-
ari en aðrar
konur, á með-
an karlar sem
áttu börn og
höfðu sterkt
félagslegt
tengslanet
voru ham-
ingjusamari
en aðrir karlar.
milli mála að samkvæmt rann-
sókninni eru góð náin sambönd
afar mikilvæg ætli menn sér að
öðlast lífshamingju á miðjum
aldri,“ sagði Dr. Charles Hill, sem
hafði umsjón með rannsókninni, í
viðtali við fréttavef Reuters.
í rannsókninni voru 261 mið-
aldra einstaklingar rannsakaðir.
Hver og einn þeirra hafði tekið
þátt í spurningakönnun árið 1972
þar sem spurt var um skoðanir og
reynslusögur 231 pars. Vísinda-
menn fylgdu málinu síðan eftir
tveimur árum síðar til þess að sjá
hvort pörin væru ennþá saman og
ÁSTFANGIN HJÓN
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birt var á evrópuþingi sálfræðinga i London nýlega, leiðir ástkært samband oftast til
hamingju hjá miðaldra fólki.
árið 1987 var síðan athugað hvern-
ig þessum einstaklingum hafði
gengið í lífinu; hvernig starfs-
ferlillinn hafði verið og hvort þeir
höfðu gifst eða átt börn.
í rannsókninni kom m.a. fram
að konur með stranga trúarsann-
færingu voru hamingjusamari en
aðrar konur, á meðan karlar sem
áttu börn og höfðu sterkt félags-
legt tengslanet voru hamingju-
samari en aðrir karlar. Karlar sem
voru í góðu sambandi við kærust-
una sína í framhaldsskóla og biðu
með að stunda kynlíf þar til síðar
meir voru hamingjusamari á miðj-
um aldri á meðan konur sem voru
virkari en aðrar konur í kynlífinu í
framhaldsskóla voru hamingju-
samari á miðjum aldri en aðrar
konur. ■
Menntamálaráðuneytið.
Arleg skólaskylda
verður í
GRUNNSKÓLAR Grunnskólanemend-
um er skylt að mæta í skólann í 180
daga á ári frá og með komandi
skólaári. Þetta kemur fram í svari
ráðuneytisins við fyrirspurn þar
að lútandi sem birt er á heimasíðu
ráðuneytisins. Þar kemur m.a.
fram að þeir 10 viðbótardagar sem
samið var um í kjarasamningi
grunnskóla jafngildir öðrum dög-
um skólaársins, þótt aðeins séu
gerðar kröfur um 170 kennsludaga
að lágmarki í grunnskólalögum.
Eiríkur Jónsson formaður
Kennarasambandsins íslands seg-
ir að þegar sveitarfélögin og Félag
grunnskólakennara sömdu um sl.
áramót hefði því verið velt upp
hvort ástæða hefði verið að breyta
grunnskólalögum vegna þessa 10
daga fjölgunar á skóladögum.
Menn hefðu hins vegar komist að
þeirri niðurstöðu að þess þyrfti
ekki.
180 daga
ENGJASKÓLI
Sú viðbót sem samið er um I kennara-
samningum er hluti af skyldunámi að mati
menntamálaráðuneytis.
í svari ráðuneytisins kemur
m.a. fram að eðlilegt sé að líta þá
viðbót sem semst í kjarasamning-
um sem hluta af skyldunámi. Það
sé hins vegar útfærsluatriði sér-
hvers skóla í skólanámskráa
hvernig þessir viðbótardagar séu
nýttir hverju sinni. ■
Dóttirin í prófessorsmálinu óskaði ekki nafnleyndar í málinu gegn Jóni Steinari:
Skaðað sig meira sjálf
dÓmsmál Dóttir og meint fórnar-
lamb sakborningsins í svoköll-
uðu prófessorsmáli óskaði ekki
nafnleyndar þegar hún höfðaði
mál á hendur Jóni Steinar Gunn-
laugssyni, lögmanni föður síns.
Eins og kunnugt er taldi stúlkan
að Jón Steinar hefði gert á hlut
sinn í umfjöllun um málið eftir
að Hæstiréttur hafði sýknað föð-
urinn af ásökunum um kynferð-
isbrot gegn henni.
„Það er ein mjög sérkennileg
hlið á þessu máli að sakirnar
sem eru hafðar fram á hendur
mér eru um það að ég hafi kom-
ið nærri persónulegum hags-
munum stúlkunnar. Ég nefndi
nafn hennar aldrei. Þar með
virti ég sömu reglu og Hæsti-
réttur varðandi nafnbirtingu.
Þegar hún fer svo fram í dóms-
máli á hendur mér með kröfur af
því að ég hafi skaðað persónu-
lega hagsmuni hennar þá gerir
hún það sjálf undir fullu nafni.
Hún óskaði aldrei eftir neinni
nafnleynd við rekstur á þessu
máli og það skýtur auðvitað
mjög skökku við þegar að sakar-
efnið er skoðað; sem sagt það að
einhverjar formreglur hafi
bannað mér að tala út af per-
sónulegum hagsmunum hennar.
Með því að höfða mál undir fullu
nafni er hún væntanlega búin að
skaða þessa hagsmuni sína
miklu meira sjálf heldur en hún
telur að ég hafi gert,“ segir Jón
Steinar Gunnlaugsson. ■
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON
„Með því að höfða mál undir fullu
nafni er hún væntanlega búin að skaða
þessa hagsmuni sina miklu meira sjálf
heldur en hún telur að ég hafi gert," segir
hæstaréttarlögmaðurinn sem er nýdæmd-
ur fyrir brot á góðum lögmannsháttum.