Fréttablaðið - 14.08.2001, Síða 18
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEB?
pAll óskar hjálmtýsson.
POPPSTJARNA OC MEÐLIMUR I UNDIRBÚNINGS-
NEFND GAY PRIDE 2001
Ég mæli með því að ALLIR komi útúr
skápnum, ekki bara samkynhneigðir, heldur
Ifka allir þeir sem Irfa á hvítum lygum í tvö-
földum veruleika. Lífið getur verið svo auð-
velt Ekki „streitast" á móti því!
METSÖLULISTI
Mest seldu bækurnar á
Amazon.com
David McCullough
JOHN ADAMS
Suze Orman
THE ROAD TO WEALTH
CJ Clive Cussler
VALHALLA RISING
Remy Rougeau
ALL WE KNOW OF HEAVEN
Nicholas Perricone M.D
THE WRINKLE CURE
JStephen E. Ambrose
THE WILP BLUE
wm Lalita Tademy
CANE RIVER
James Patterson
SUZANNE'S DIARY FOR
NICHOLAS
Katharine Graham
PERSONAL HISTORY
Stephen King, Peter Straub
BLACK HOUSE
Metsölulistinn:
John Adams á
toppnum
bækur Ævisaga John Adams ann-
ars forseta Bandaríkjanna trónir
á toppi metsölulista Amazon.com.
Höfundurinn David McCullough
hefur hlotið mikið lof fyrir bók-
ina, en hann hlaut Pulizer verð-
launin fyrir ævisögu Harry S.
Truman.
Höfundinum þykir takast einkar
vel upp við að bregða upp mynd af
Adams og flóknu sambandi hans
við Thomas Jefferson sem bolaði
honum úr Hvíta húsinu árið 1800.
Þeir deildu svo dánardægri 26
árum síðar þann 4. júlí, 50 árum
eftir undirritun sjálfstæðisyfir-
lýsingar Bandaríkjamanna.
IÍUSA
l N T S R N S T I 0 N A L
Ábyrgir aðilar í áraraðir
Er skammturinn búinn?
Hafðu samband við mig
ef þig vantar vörur.
Kjartan Sverrisson,
sjálfstæður Herbalife
dreifingaraðili
simi 897 2099
Fiugsiysið Skerjafiröi.
Söfnunarsímar
Ef hringt er í eftirtalin númer
gjaldfærist af reikningi símans,
sem hringt er úr, sem hér segir:
Sími 907 2007 - 1.000,- kr
Sími 907 2008 - 2.000,- kr
Sími 907 2009 - 5.000,- kr
Bankar. er no. 1175-05-409940
11_____________' _______FRÉTTABLAÐIÐ___________________________________14. ágúst 2001 ÞRIÐIUPAGUR
íslenskt djasstónskáld:
Lofsamlegir dómar í
Washington Post
djass Gagnrýnandi Wasington Post,
Mike Joyce, lýkur miklu lofsorði á
hljómdiskinn Mindful, þar sem
Sunna Gunlaugs djasspíanisti leik-
ur eigin tónsmíðar ásamt kvartett
sínum. Gagnrýnandinn segir ljóst
að ekki fari á milli mála að Sunna
sæki sér innblástur í ljóðrænan og
tígulegan djassmeistara á borð við
Bill Evans og Keith Jarrett, en
meira sé í hana spunnið en svo að
hún ausi bara úr brunninum en
bæti engu við.
Mike Joyce segir að stíll Sunnu
sé lagrænn og leiti inn á við og að
á stöku stað glitti í bakgrunn
hennar í klassískri tónlist. Hann
segir að skýrt mótaður píanóleik-
ur einn og sér ætti að laða að að-
dáendur Evans og Jarett og ekki
síður þegar við bætist leikur
kvartettsins sem sé í senn per-
sónulegur og fullur innsæis. Hann
bætir því við að verk hennar beri
þess ekki alltaf merki að þær séu
hugsaðar út frá píanói né að höf-
undurinn sé píanisti. Sú stað-
reyndi gefi saxafónleikaranum
Tony Malaby tækifæri til að gal-
dra fram lokkandi tóna úr hljóð-
færi sínu. Auk þess séu útsetning-
ar hennar og hrynjandi verkanna
til þess fallin að laða fram frábær-
an hljóðfæraleik trommuleikar-
ans Scott Mclemore og bassaleik-
rans Drew Gress. Verk Sunnu séu
þokkafull brú milli ferðar inn í
heima sálarinnar og ósvikinnar
sveiflu. ■
FÆR LOFSAMLEGADÓMA
Gagnrýnandi Washington Post er ákaflega
hrifinn af leik og tónsmlðum íslenska djas-
spíanistans Sunnu Gunnlaugs.
Haustvörurnar á leið upp úr kössum:
Flestir leita að skólafötum
SKOÐAÐ OG FLOKKAÐ
Gréta L. Karsldóttír var að taka síðermaboli upp úr kössum í versluninni Du Pareil au
meme í gær.
verslun Nú líður að útsölulokum í
verslunum borgarinnar og víða
eru starfsmenn í óða önn að taka
haustvörurnar upp úr kössum.
Þetta á meðal annars við um
starfsmenn barnafataverslunar-
innar Du Pareil au meme í
Kringlunni. Þegar þangað var
komið upp úr hádegi í gær blös-
tu við nýjar vörur á rekkum og
hillum og búið var að taka niður
allar útsöluslár. Litirnir vistust
orðnir heldur haustlegri en fyrir
nokkrum vikum og augljóst að
daginn er tekið að lengja og
skólabyrjun nálgast.
„Það eru skólafötin númer
eitt, tvö og þrjú,“ sagði Guðrún
Pétursdóttir verslunarstjóri þeg-
ar hún var spurð að hverju við-
skiptavinirnir væru helst að
leita að þessa daga. „Það er mik-
ið verið að taka peysur og buxur.
Það er minna um kjólana núna en
samt eru þeir alveg inni í dæm-
inu, t.d. útvíðar leggings og
skokka yfir.“ Orð Guðrúnar voru
staðfest um leið og farið var að
ræða við viðskiptavini verslun-
arinnar, sem af einhverjum
ástæðum voru fyrst og fremst
mæður með dætrum sínum.
Mæðgurnar Dýrfinna og
Hanna Lára voru að leita að
skólafötum. Hanna Lára var ekki
með ákveðnar skoðanir á því
hvað hana langaði í svo þær
mæðgur voru bara að líta í
kringum sig. Guðný og Pála Mar-
grét sem er sjö ára voru líka að
leita að skólafötum og þær sögð-
ust fyrst og fremst vera að leita
að peysu. Alma sagðist líka vera
að leita að skólafötum á Berg-
lindi sem er átta ára og með
þeim í för var líka Telma vin-
kona Berglindar. „Við ætlum að
finna okkur buxur, peysu og
skokk utan yfir,“ sagði Alma og
það var greinilegt að Berglindi
leiddist hreint ekki í þessari
bæjarferð.
Vinnufélagarnir Þuríður,
Hrönn og Svandís voru að leita
að sængurgjöf hana samstarfs-
konu sinni. „Við ætlum að kaupa
eitthvað bleikt og sætt,“ sögðu
þær en bættu við að líklega væru
þær heldur snemma á ferðinni
og líklega kæmu þær aftur eftir
nokkra daga. ■
ÞRIÐJUDAGURINN
14. ÁGÚST
ÚTIVERA___________________________
19.00 Kirkjuferð með Erlu Stefáns-
dóttur. Heimsóttar verða kirkjur í
Hafnarfirði og nágrenni. Haldið
verður út að Görðum, kirkjan
skoðuð og rifjuð upp sagan.
Blessað yfir þeim er hafa verið
kvaddir á þessum stað. Jafnvel
sungið, hugleitt og beðið fyrir
landi og þjóð. Hægt væri að ná til
huldufólksins er býr þarna í holt-
inu og biðja um jafnvægi milli
þeirra og mannfólksins á öllu nes-
inu. Hist að Vesturgötu 8 í Hafnar-
firði.
1930 Smádýralíf í Elliðaárdal. Orku-
veita Reykjavíkur efnir til göngu-
og fræðsiuferðar f Elliðaárdal und-
ir leiðsögn Guðmundar Halldórs-
sonar, skordýrafræðings og Odds
Sigurðssonar, jarðfræðings. Lagt
af stað frá gömlu Rafstöðinni.
19.30 Kvöldgangan í Viðey verður að
þessu sinni á sióðir Milljónafé-
lagsíns svokallaða, en það stofn-
aði útgerð á austurenda eyjunnar
í byrjun síðustu aldar. Út frá því
myndaðist um 100 manna þorp.
Litið verður inn á sýninguna
Klaustur á Islandi sem gamla
skólahúsið í þorpinu hýsir, fjaran
gengin og náttúrunnar notið. Fólk
er beðið að klæða sig eftir veðri
og er brýnt að vera í góðum
skóm. Ferjuferð úr Sundahöfn.
TÓNLEIKAR_________________________
20.30 Guðtún Ingimarsdóttir sópran
og Heike Matthiesen gítarleikari
halda tónleika í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar i kvöld. Flutt
varða verk eftir John Dowland,
Máthyás Seiber, Jorge Morel,
Jayme Ovalle, Paurillo Barroso,
Heítor Villa-Lobos, Fernando Sor,
Francisco Tarrega, Joaquin
Rodrigo og Frederico Garcia
Lorca.
SÝNINGAR__________________________
Fom tré í Eistlandi er yfirskrift sýningar
á Ijósmyndum sem eistneski Ijósmynd-
arinn Hendrik Relve hefur tekið. I Nor-
ræna húsinu eru 18 Ijósmyndir til sýnis
í anddyri hússins. Sýningin er sett upp í
tengslum við Menningarhátíð Eystra-
saltsríkjanna á Norðurlöndum sem
stendur yfir frá 1. september til 1. nóv-
ember 2001. Sýningin er opin daglega
kl. 9 til 17, nema sunnudaga kl. 12 til 17.
Sýningin stendur til 23. september.
Sýning á lækningamunum í Nesstofu.
Þar er meðal annars endurgert apótek
frá 18. öld, fæðingaráhöld, aflimunar-
tæki, augnlækningatæki og fleira frá fyrri
tíð. Safnið er opið á sunnudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 13 til 17.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
vikinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu f bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. Opnunartími
sýningarinnar er virka daga frá 12 til 17
og stendur sýningin til 17. ágúst
MYNDLIST___________________________
í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6 standa
Ljósálfar fyrir Ijósmyndasýningunni Ljós
og skuggar. Myndirnar á sýningunni
voru allar teknar í sumar í Skuggahverf-
inu í Reykjavík. Ljósálfar eru Einar Óli
Einarsson, Friðrik Þorsteinsson, Lars
Björk, Svavar G. Jónsson og Vilmundur
Kristjánsson. Sýningunni lýkur 26. ágúst
Max Cole sýnír nú í iSgallerí Myndir
hennar byggjast á láréttum llnum sem
myndaðar eru með smágerðum lóðrétt-
um hreyfingum. Samspil láréttra forma
og einsleitra litaflata mynda taktfastan
samhljóm. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Thomas Ruppel sýnir í neðra rými
i8gallerí. Sýningin er opin alla daga
nema sunnudaga og mánudaga frá kl.
13 til 17 og lýkur henni 15. september.
Á Sjóminjasafni fslands í Hafnar-
firði stendur nú sýning grænlenska
listamannsins Johannesar Kreutz-
mann. Hann sýnir málaðar tréskurð-
armyndir. Sýningin er opin milli kl. 13
og 17 og lýkur sýningunni 2. septem-
ber.
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningar Safns Asgríms
Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 í
Reykjavík. Á sýningunni eru margar af
frægustu þjóðsagnamyndum lista-
mannsins og þar má sjá vinnustofu,
heimili og innbú hans. Sýningin stendur
til 1. september. Opið alla daga nema
mánudaga kl.13.30 tíl 16.00.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Sýningin er opin alla daga kl. 10 til
17 en til kl. 19 á miðvikudögum. Hún
stendur til 7. október.
Gönguferð í Elliðaárdal
Dalsins minnstu bræður
útivist Gönguferðir Orkuveitu
Reykjavíkur hafa notið mikilla
vinsælda í sumar. í kvöld verður
litið til skordýralífs í dalnum und-
ir leiðsögn Guðmundar Halldórs-
sonar, skordýrafræðings og Odds
Sigurðssonar, jarðfræðings. Þeir
félagar eru að leggja lokahönd á
bók um skordýralífið í Elliðaárdal
í samvinnu við Orkuveituna sem
koma mun út í haust. Gangan
hefst kl. 19:30 við gömlu Rafstöð-
ina. Áður en lagt verður af stað
mun Oddur sýna skordýramyndir
en fáir munu eiga betra safn af
ljósmyndum af íslenskum skor-
dýrum en hann.
Síðan verður farið um mismun-
andi gróðurlendi dalsins og hugað
SKORDÝRALÍF í ELLIÐAÁRDAL
Gaumurverður gefinn bæði að frumbyggj-
um og nýbúum dalsins og sagt frá lífsferli
og lífsháttum þessara smávöxnu granna
okkar.
að þeim smádýrum sem þau bygg-
ja. Aukinn gróður í Elliðaárdal
hefur aukið fjölbreytni skordýra-
lífs til muna. Æskilegt er að þátt-
takendur hafi með sér stækkunar-
gler. ■
Hressileg Júlía
Menn eru ákaflega mis-
mótækilegir fyrir því að
stórvirki leikbókmenntanna séu
tekin og þeim breytt og unnið
með þau á óhefðbundinn hátt.
Til sannsvegar má færa að í
mörgum tilvikum auki slíkt lítið
við gildi verkanna. Fröken Júlía
eftir Strindberg hefur oft verið
tekin fyrir og reynt að vinna
með hana á nýstárlegan hátt,
ástæðan er sennilega sú að
verkið býr yfir mikilli dýpt og
því freistandi að leggja í miklar
pælingar.
Ég veit ekki hvort sýningin
Fröken Júlía - enn og aftur al-
veg óð auki mikið við verkið
FRÖKEN JÚLÍA - ENN OG AFTUR AL-
VEG ÓÐ Byggt á leikríti August Strlnd-
berg________________. ________I
LEIKSTJORI: Rúnar Guðbrandsson
AÐALHLUTVERK: Pálína Jónsdóttir,
Sigrún Sól Ólafsdóttir og Árni Pétur Guð-
jónsson
miðað við hefðbundna nálgun.
Hitt er ljóst að sýningin er vel
unnin og maður hrífst með
sköpunarkrafti hennar. Um-
gjörð sýningarinnar er framúr-
skarandi og vinna leikai’a og
leikstjóra frábær á köflum. Þar
fyrir utan er sýningin skemmti-
lega ólíkindaleg og fín leikhús-
upplifun. Ég skemmti mér alla
vegavel. HafWi Helgason