Fréttablaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 6
FF*. rr#W#rrrfew^v%/'? n jFiflp :\W± tH.wfíxlH®h:7wl¥*-»n »*í%%
■ ■ *, 3ESB2¥&ŒJl 'fWJFiSiWW&T ‘’’"r '
Hli >.'i s '*.- f •• • * - * * # ■ ;
■ v*Twr
SPURNINC DACSINS
FRETTABLAÐIÐ
19. desember 2001 MIÐVIKUDAGUR^
Ný lög um leigubíla:
Saudi-arabísk prinsessa
handtekm:
Lamdiþjón-
ustustúlkuna
orlando.flórída.ap Lögreglan á
Flórída handtók nýlega sádi-arab-
íska prinsessu fyrir að hafa ráðist
á indónesíska þjónustustúlku sína
og ýtt henni niður stiga. Atburður-
inn átti sér stað á lúxussvítu þar
sem prinsessan dvaldi ásamt
þjónustustúlkunni. Það voru ná-
grannar prinsessunnar sem
kvörtuðu við lögreglu eftir að
þjónustustúlkan hljóp grátandi út
úr íbúðinni. Á prinsessan Buniah
al-Saud, sem er frænka Fahd, kon-
ungs Saudi Arabíu, yfir höfði sér
allt að 15 ára fangelsi verði hún
fundin sek um líkamsárás. ■
Gefur þú margar jólagjafir í ár?
Tíu handsamaðir í fyrrinótt:
„Já, ætli ég gefi ekki um 10 -15 pakka. Þeir
eru allir til fjölskyldumeðlima."
Donald IngóUsson
Enn eitt
lögreclumál Enn eitt innbrotið
var framið í verslun BT. Það var
klukkan 5.30 í fyrrinótt en versl-
anir fyrirtækisins virðast vinsæl-
ar hjá þjófum.Nú var um að ræða
verslun BT í Grafarvogi. Lögregl-
unni í Reykjavík tókst að hand-
sama þjófana, sem voru þrír, en
þeir höfðu lagt á flótta. Ekki tókst
þeim að stela neinu með sér. Þá
handtók lögreglan þrjá menn sem
voru að brjótast inn í bíla við
Tunguháls og fannst þýfið í fórum
þeirra. Þeir hafa allir játað á sig
» verknaðinn. Einnig var brotist inn
í Hreyfingu í Faxafeni í morgun.
Einn maður var handsamaður en
lögreglan telur fleiri hafa verið að
innbrotið hjá BT
verki. Það voru starfsmenn sem
komu að mönnunum sem flúðu af
vettvangi. Engu var stolið.
Mikill erill var hjá lögreglu í
fyrrinótt og í gærmorgun. Þrír
menn voru staðnir að verki í
Heimahverfi en þeir höfðu brotið
rúður í vinnuvél og strætóskýli.
Að sögn lögreglu var ölvun mikil
víða um borgina, heimilisófriður
og ölvunarakstur. Taldi viðmæl-
andi Fréttablaðsins hluta skýring-
ar vera að framhaldsskólar væru
komnir í jólafrí og nemendur að
skvetta úr klaufunum.
VERSLUN BT
I þetta sinnið tókst lögreglunni að hafa
hendur i hári þjófanna sem voru þrír.
OPOLINMOÐIR ÞJOÐVERJAR
Þjóðverjar bíða greinilega spenntir eftir evrunni. A.m.k. myndaðist mikil örtröð I þýskum bönkum á mánudaginn þegar fyrstu sýnishornin
af mynt og seðlum evrunnar voru boðin til sölu.
Myntbreytingarverð-
bólgan þegar farin af stað
Undirbúningur evrunnar á lokastigi. Evran verdur ekki fáanleg aUstaðar.
Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og gflr ?0 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
Frábær jóiadagskrá í Vetrargarðinum í dag!
isroo Páll Óskar og Monika spíia og ánta.
i6:oo-i8:oo Myndataka meðJólasveinum.
16:30 og 17:30 Jólasagan íesin.
17:00 Jólasveinarskemmta.
17:30-19:00 Jólaball.
/Evintýraheimur bamanna í J Ólalandinu i allan dag.
Veröttfin okkar er full af Iffi og fjöri f dag og það sama á við um
göngugötuna þar sem harmonikkuhtjómsveit, jótasveinar og
fíðlusveit skapa rétta jólaandann.
Verslanir
opns til
22:00
framtiljóla
£
-RÍITI JÓLAANÐINN
Verslanir opnar I dag mílll klukkan 11:00 og 22:00 - www.smaralind.is
evran Þýska hagstofan skýrði frá
því í gær að verðhækkanir í
Þýskalandi megi í auknum mæli
rekja til þess, að um næstu ára-
mót taka Þjóðverjar ásamt öðrum
Evrópusambandsríkjum upp sam-
eiginlega mynt, evruna. Líklegt
þykir að svipuð þróun eigi sér
stað í öðrum aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins (ESB).
Þýsku tölfræðingunum reikn-
ast svo til, að sjöttu hverja verð-
hækkun á tímabilinu janúar til
október á þessu ári megi beint
rekja til myntbreytingarinnar.
Menn nota greinilega tækifærið
til að hækka verð lítillega, til þess
að hækkun upp að næstu hentugu
tölu verði minna áberandi eftir
áramótin. Þessarar tilhneigingar
hefur gætt í vaxandi mæli síðustu
mánuðina.
Af undirbúningnum fyrir evr-
una er annars það að frétta, að
flest ESB-ríkin þykja hafa staðið
sig býsna vel þótt í mörg horn sé
að líta. Sem dæmi má nefna að
töluverð vinna fer í að skipta um
mynt í hraðbönkum. Þannig má
búast við að í ÞýskaLandi, Spáni,
Lúxemborg, Hollandi, Austurríki
og Belgíu verði nánast allir hrað-
bankar komnir með evrur strax
um áramótin. Á Ítalíu verða 90%
hraðbanka komnir með evrur,
85% í Frakklandi og 80% á Ir-
landi.
Hins vegar viðurkenndi seðla-
bankinn í Finnlandi að þar verði
ekki nema 35% hraðbanka komnir
með evrur um áramótin. Kari
Lottanen, fulltrúi Finnlands-
banka, segir hins vegar enga
ástæðu til að örvænta, því 95%
hraðbankanna í Finnlandi verða
komnir með evrur þann 4. janúar.
„Við teljum að það sé alveg nógu
fljótt.“ ■
Ríki og sveitarfélög:
Samstarf um kjaramál
og hagstjóm
stjÓRNSÝsla Ríkið og sveitarfélög-
in hafa verið að vinna að því að
taka upp nánara, formlegra og
markvissara samstarf um kjara-
mál og hagstjórn í landinu. Þessar
viðræður eru komnar svo langt að
reiknað er með því að gefin verði
út sameiginleg yfirlýsing um
ýmis samskiptamál þessara aðila í
þessari viku. í þessu sambandi má
benda á að fjármálaráðherra hef-
ur lagt áherslu á mikilvægi þessa
samstarfs á milli þessara tveggja
stjórnsýslustiga. Þótt minna hafi
orðið úr framkvæmdum í þeim
efnum er búist við að breyting
verði á því í framhaldi af þessum
viðræðum.
Meðal sveitarstjórnarmanna
virðast margir vera þeirrar skoð-
unar að það sé hollt fyrir bæði
þessi stjórnsýslustig að hafa
meira samráð en verið hefur. Sér-
staklega þegar haft er í huga að
■PPP’W CEIR
HAARDE
■ FJÁRMÁLA-
■ ~ RÁÐHERRA
Hefur lagt áher-
slu á mikilvægi
§f§ JBg samstarfs á milli
, M gs°í“"“*
hlutur sveitarfélaga af þjóðarkök-
unni hefur verið að vaxa í sam-
ræmi við fjölgun þeirra verkefna
sem þau hafa á sinni könnu. Þá
hefur einnig verið fullur vilji af
hálfu margra sveitarstjórnar-
manna að taka upp nánara sam-
starf við ríkið vegna kjaramála.
Fram til þessa hefur það strandað
á ríkinu að sögn sveitarstjórnar-
manna. ■
Ekki mikil breyt-
ing fyrir okkur
leigubílar „Þetta er í sjálfu sér
ekki mikil breyting fyrir okkur.
Yfirstjórnin færist bara frá ráðu-
neytinu yfir í Vegagerð“, segir
Ásgeir Þorsteinsson, formaður
Bifreiðastjórafélagsins Frama,
sem segir harða gagnrýni á ný lög
um leigubifreiðar vera á misskiln-
ingi byggð.
Ásgeir segir nýju lögin ekki
verða til þess að ríkisafskipti af
störfum leigubílsstjóra aukist frá
því sem verið hefur og segir það
misskilning sem haldið hefur ver-
ið fram að völd séu að færast frá
félögum bifreiðastjóra til ríkisins.
„Við vitum ekki hvernig það á að
vera því lögin breytast ekki þan-
nig séð. Þetta er bara að færast
milli húsa. Það sem menn hafa
LEIGUBIFREIÐ
Pað eina sem leigubifreiðastjórar eru
óhressir með eru meiri gjöld.
áður þurft að sækja niður í ráðu-
neyti sækja þeir nú til Vegagerð-
arinnar.“
„Það eina sem við erum nátt-
úrulega allir óhressir með er að
það er verið að leggja á okkur
gjöld. Menn eru aldrei hrifnir af
því.“ ■