Fréttablaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
m
Rúmlega fjórðungur
lesenda vísis.is telur
að Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri eigi að
segja af sér vegna
mistaka við stjómsýslu
í máli Árna C. Sigurðs-
sonar flugstjóra.
Á flugmálastjóri að segja af sér
vegna mistaka víð stjómsýslu í máli
Áma C. Sigurðssonar flugstjóra?
Niðurstöður gaerdagsins
á www.visir.is
27%
Spurning dagsins í dag:
Var rétt af Halldóri Blöndal, forseta Al-
þingis, að ávita Ögmund Jónasson fyrir
að grípa fram i?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Tóbakssala til unglinga:
Úr 68% í
14% tilvika
heilbricði Svo virðist sem eftirlit
með tóbakssölu til unglinga yngri
en 18 ára sé að skila árangri. í það
minnsta benda niðurstöður Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu til
þess að á rúmu ári
hafi hlutfall þeir-
ra staða sem
staðnir hafa verið
að því að brjóta
þessi ákvæði tó-
baksvarnarlaga
lækkað úr 68% í
14% tilvika. Þessi
niðurstaða kom í
Ijós þegar þessi
tóbakssala var
könnuð í lok síð-
asta mánaðar. Þá
gátu unglingar
keypt tóbak á 22
sölustöðum af 160.
Hrannar B. Arnarsson formað-
ur umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur segist vera
ánægður með þessa niðurstöðu og
þá ekki síst hvað kaupmenn hafa
staðið sig vel. Framkvæmd eftir-
litsins í janúar sem leið var með
þeim hætti að unglingar í fylgd
starfsmanns íþrótta- og tóm-
stundaráðs og heilbrigðisfulltrúa
fóru á milli sölustaða þar sem
unglingarnir óskúðu eftir því að
fá keypt tóbak. Færi sala fram fór
heilbrigðisfulltrúi inn á staðinn,
gerði sölumanni grein fyrir mál-
inu, skilaði tóbakinu og skrifaði
eftirlitsnótu. Unglingarnir sem
þátt tóku í eftirlitinu eru í 9. bekk
grunnskóla. Áður hafði verið afl-
að samþykkis foreldra fyrir þátt-
töku þeirra. ■
HRANNAR B.
ARNARSSON
Segist vera
ánægður með
árangurinn og
hlut kaupmanna.
Jóhannes í Bónus um
nýjar reglur frá ESB:
Útilokar ekki
innflutning á
bílum
BÍLAR „Það hefur nú ekki komið til
greina ennþá. Maður hefur nú
stundum hugsað um þetta í gegn-
um árin. Það er ekkert sem mælir
á móti því ef við sjáum fram á að
við getum gert betur en gert hef-
urverið," sagði Jóhannes Jónsson
í Bónus aðspurður hvort fyrirtæki
hans ætli að hefja innflutning og
sölu á bílum. Nýjar reglur frá
Evrópusambandinu um aukna
samkeppni í bílasölu munu brátt
taka gildi hér á landi fyrir tilstilli
EES samningsins. Samkvæmt
þeim verður einkaumboð bílasala
afnumið sem þýðir að stórmark-
aðir geta boðið upp á bíla til sölu.
„Þetta er nú alveg nýtilkomið
og við höfum ekki skoðað þetta,“
sagði Jóhannes. Aðspurður hvort
fyrirtæki hans myndi bjóða upp á
Bónusbíla sagði hann að slíkt
hefði ekki verið rætt. „En við
skulum bíða og sjá hvort þetta
verði að veruleika. Við höfum
víða sambönd svo það er aldrei að
vita.“
Einnig bls. 8
FRÉTTABLAÐIÐ
7. febrúar 2002 FIMMTUDACUR
Sharon hittir Bush í dag:
Bush sKti tengslin við Arafat
jerúsalem. ap. Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra Israel, hittir George W.
Bush, Bandaríkjaforseta, í dag.
Sharon hefur sagt að hann ætli að
hvetja Bush til þess að slíta öll
tengsl við Yasser Arafat, leiðtoga
Palesínumanna. Arafat hefur kvart-
að yfir því að Bandaríkjamenn
dragi mjög taum ísraela. Bush sé í
raun að hvetja þá til að halda áfram
árásum á Palestínumenn með því
að bjóða Sharon í sína fjórðu heim-
sókn á ári. Embættismenn Palest-
ínumanna sögðu í gær að Banda-
ríkjamenn væru að reyna að semja
um vopnahlé á nýjan leik. Varnar-
málaráðherra ísrael, Ben-Eliezer,
segir Arafat ekki lengur eiga rétt á
aðild að viðræðunum. ■
BEN-ELIEZER, VARNARMÁLARÁÐ-
HERRA fSRAEL
Hann kom til Bandaríkjanna í gær og hitti
Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, í
gær. Ben-Eliezer hvatti Bandaríkjamenn til
þess að hefja viðræður við ný leiðtogaefni
Palestinumanna og hætta að ræða við
Arafat.
Ögmundur Jónasson á Alþingi:
Víttur fyrir ummæli um
háttvísi Híilldórs Blöndal
alpinci Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, vítti Ögmund Jónasson,
þingflokksformann VG, fyrir að
grípa fram í fyrir sér í ræðu á
þingi í gær.
Þingmenn VG höfðu deilt
á stjórnina fyrir að umræðu
um skýrslu Byggðastofnun-
ar hefði ekki verið haldið
áfram. Hún var til umræðu
11. desember. Þingforseti
var í ræðustóli að skýra
ástæður fyrir því þegar Ög-
mundur greip fram í fyrir
VÍTTUR
Ögmundur var
víttur fyrir að
honum. Halldór sagðist hafa grípa frammí fyrir mundur væri víttur fyrir
haldið að þingmenn kynnu þingforseta. ummæli sín. I
þá háttvísi að grípa ekki frammí
fyrir forseta Alþingis þegar hann
væri að tala. Ögmundur svaraði
því með því að grípa aftur frammí
fyrir þingforseta með orð-
unum. „Það þekkir hann
allavega, háttvísina." Gall
þá við frá öðrum þing-
manni að réttast væri að
víta Ögmund fyrir um-
mæli sín. Eftir að hafa
gluggað í fundarsköp Al-
þingis tók Halldór aftur til
máls og tilkynnti að Ög-
Rádherra segir sér
óheimilt að úrskurða
um Atlantsskip
Utanríkisráðuneytið segir ráðherra óheimilt að úrskurða um fram-
kvæmd Atlantsskipa á sjóflutningum fyrir varnarliðið. Formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur segir svarið Hútúrsnúning“. Lögbann var í
gær sett á aðgerðir félagsins í Njarðvíkurhöfn gegn Atlantsskipum.
félacsmál Embætti sýslumannsins
í Keflavík setti í gær lögbann á að-
gerðir Sjómannafélags Reykjavík-
ur og Verkalýðs- og Sjómannafé-
lags Keflavíkur gegn skipi Atl-
antsskipa í Njarðvík.
Verkalýðsfélögin hættu því
strax aðgerðum til að hindra upp-
skipun úr skipinu sem er í sigling-
um fyrir Bandaríkjaher. Um er að
ræða hollenskt Ieiguskip með er-
—4— lendri áhöfn, að
Lög og aðrar mestu frá FiJ'PPS-
réttarheimildir edum: ,, .Feþgin
veiti ráðherra vlfJa aá ahöfnin fai
ekki heimild g>;eitt, samkyæmt
til að úrskurða lslenskum kJara-
um gildi sammngum.
___• Jonas Garðars-
. ® .. . son, formaður Sjó-
eru^|ð,ra mannafélags
miHmkja- Reykjavíkur, seg-
samningum. ist telja að lög.
—♦.......... bannsúrskurður-
inn byggi ekki á málefnalegri af-
greiðslu.
„Það er ekki sjáanlegt að það sé
tekið tillit til málsatvika. Hins
vegar verða Atlantsskip nú að
höfða staðfestingarmál vegna lög-
bannskröfunnar fyrir héraðsdómi
innan sjö daga. Við erum spenntir
að fá að flytja okkar mál þar,“ seg-
ir Jónas.
í desember sl. sendi Sjómanna-
félag Reykjavíkur stjórnsýslu-
kæru til utanríkisráðuneytisins
vegna framkvæmdar Atlantsskipa
á milliríkjasamningi íslands og
SJÓMANNAFORINGI f STÓRRÆÐUM
Jónas Carðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavlikur, átti samskipti við lögregluna I
Keflavík í gæ vegna Atlantsskipa. Myndin var tekin þegar Jónas ræddi við hafnfirska
lögreglumenn vegna aðgerða sjómanna í Straumsvíkurhöfn (fyrra.
Bandaríkjanna. Óskað var eftir
úrskurði ráðherra um gildi samn-
ingsins milli Atlantsskipa og
varnaliðsins um sjóflutninga fyrir
varnarliðið. Einnig var krafist úr-
skurðar um framkvæmd samn-
ingsins með tilliti til varnarsátt-
málans og samnings þjóðanna um
sjóflutningana.
Svar barst frá utanríkisráðu-
neytinu um mánaðamótin. Þar
sagðist ráðuneytið ekki geta orðið
við kröfu um úrskurð. M.a. kemur
þar fram það álit að lög og aðrar
réttarheimildir veiti ráðherra ekki
heimild til að úrskurða um gildi
samninga sem eru byggðir á milli-
ríkjasamningum.
Jónas segir svar ráðuneytisins
aðeins vera „útúrsnúning". „Ráðu-
neytinu ber að úrskurða um fram-
kvæmd varnarsamningsins. Þeir
koma sér laglega undan því með
að taka ekki efnislega á kærunni.
Við þurfum því að senda þeim er-
indi aftur. Við hljótum að eiga að
fá málefnalegt svar,“ segir hann..
Lögbann á aðgerðir sjómanna-
félags Reykjavíkur gildir í 21 dag.
Næst er von á skipi Atlantshafs-
skipa eftir 24 daga.
gar@frettabladid.is
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
í lok tímabilsins verði þeir sem slasast al-
varleg eða látast innan við 120 á ári.
Umferðaöryggisáætlun til
næstu 10 ára:
Enginn látist
í umferðar-
slysum
uMFERÐARðRYCCi í gær kynnti
dómsmálaráðherra, Sólveig Pét-
ursdóttir ásamt starfshópi nýja
umferðaöryggisáætlun til næstu
tíu ára þ.e.2002 til 2012. Megin-
markmiðið sem starfshópurinn
setti fram er að ísland verði fyrir-
myndarland í umferðaröryggis-
málum árið 2012. Stefnt verði að
því að banaslysum og öðrum al-
varlegum slysum fækki um 40%
fyrir lok tímabilsins. í máli ráð-
herra kom fram að markmið fyrri
áætlunar sem gekk í gildi 1997
hefðu náðst að hluta. Ekki væri
enn samræmd slysaskráning um
landið en það væri í vinnslu að
koma henni á. Á hinn bóginn sagði
ráðherra að markmið um að færri
en 200 myndu látast eða slasast al-
varlega á ári fyrir lok viðmiðun-
artímabilsins hefði náðst árið
2001 þrátt fyrir verulega fjölgun
bifreiða.
Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastjóri Umferðaráðs sagði
meðal annars að skortur væri á
tækjum til að geta fylgst með
lyfjanotkun ökumanna og í áætl-
uninni væri gert ráð fyrir að bætt
yrði úr því. Ennfremur sagði Óli
að nauðsynlegt væri að stórauka
umræðuna um syfju því það væri
dulið vandamál í umferðinni. ■
Úrskurðarnefnd vátryggingamála skilar að jafnaði 100 úrskurðum gegn trygginga-
félögunum árlega:
Brotleg tryggingafélög
nafngreind í Danmörku
tryccincamál Úrskurðarnefnd í
vátryggingamálum skilaði 250 úr-
skurðum á síðasta ári. í rúmum
þriðjungi málanna var komist að
þeirri niðurstöðu að tryggingafé-
lag hefði brotið á viðskiptavini
sínum. Neytendasamtökin, Sam-
band íslenskra tryggingafélaga og
viðskiptaráðuneytið stofnuðu
nefndina árið 1994. Síðan þá hafa
meira en 1.500 úrskurðir gengið
sem jafngildir einum úrskurði
hvern virkan dag frá stofnun.
Rúnar Guðmundsson, lögmað-
ur í Fjármálaeftirlitinu og formað-
ur nefndarinnar, sagði samkomu-
lag hafa orðið við stofnun nefndar-
innar að málsaðilar yrðu ekki
opinberum gögn-
um. Úrskurðirnir
væru því birtir án
nafngreiningar á
heimasíðu Fjár-
málaeftirlitsins.
Um framkvæmd í
nágrannalöndum
sagði Rúnar að hjá
hliðstæðum
nefndum í Dan-
mörku væru
tryggingafélög
nafngreind. Hann
tók ekki afstöðu til
þess hvort slíkt
JÓHANNES
GUNNARSSON
Nafngreining
tryggingafélag-
anna gæti haft
þýðingu fyrir
neytendur.
væri eðlilegt hér á landi.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, er þeirr-
ar skoðunar að nafngreining gæti
verið neytendum til hagsbóta.
„Það er alveg rétt að slíkar upplýs-
ingar gætu haft þýðingu fyrir
neytendur, en ég minni á þessi
regla er samkvæmt samkomulagi
við tryggingafélögin," sagði Jó-
hannes. „Við ráðum ekki alltaf
ferðinni þegar við gerum sam-
komulag við aðra og erum að
reyna að tryggja hagsmuni neyt-
andans. Við náum því ekki alltaf
fram sem við hefðum í upphafi
óskað.“ Jóhannes tók þó fram að
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
Úrskurðarnefnd vátryggingamála hefur
fjallað um hátt í 2.000 mál á sjö árum.
Málsskot kostar 5.000 krónur.
meginatriði málsins væri að koma
nefndum af þessu tagi á stofn.
Um 80% mála sem nefndin
fjallar um varða árekstra öku-
tækja. Rúnar segir að þar séu oft
umtalsverðir fjárhagslegir hags-
munir í húfi, enda komi líkamstjón
mikið við sögu. Nefndin taki þó
ekki ákvarðanir um bótafjárhæðir
nema með samþykki aðila. í flest-
um tilfellum sé aðeins úrskurðað
um réttarstöðu. „Þetta er í það
minnsta ódýr og tiltölulega fljót-
virk leið til að ná fram lausn
ágreiningsmála."
Sjá einnig bls. 4
mbh@frettabladid.is