Fréttablaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 14
FRAMUNDAN HJÁ
JÓNI ARNARI
Enski bikarinn:
Chelsea sig-
ur á loka-
mínúturmi
fótbolti Chelsea vann nauman 3-2
sigur á West Ham á útivelli í fjórðu
umferð Ensku bikarkeppninnar í
gær. Varnarmaðurinn John Terry
tryggði liðinu sæti í fimmtu umferð
með marki á 93. mínútu, en hann
gerði sjálfsmark í fyrri hálfleik.
Eiður Smári Guðjohnsen náði
ekki að skora og var skipt útaf á 60.
mínútu fyrir Mikael Forsell. Sá
nýtti tækifærið vel og skoraði eitt
mark. Hasselbaink skoraði fyrsta
mark Chelsea beint úr aukaspyrnu.
Defoe skoraði annað mark West
Ham.
Stoke burstaði Cambridge 5-0 í
ensku 2. deildinni í gær. ■
ENCIN UNDANBRÖGÐ
Forseti Alþjóða hnefaleikaráðsins segir
Lewis verða að berjast næst við Tyson.
Annars mun heimurinn áfram vera í vafa
um hvor er betri.
Forseti WBF um Lennox:
Tyson næst!
hnefaleikar Alþjóðlega hnefa-
leikaráðið, WBF, er reiðubúið til
að stöðva það að Lennox Lewis
mæti næst Chris Byrd en ekki
Mike Tyson. Þegar Tyson missti
hnefaleikaleyfið í Nevada fylki
sagði Lewis að allar líkur væru á
að hann myndi ekki berjast við
hann fyrr en seinna á árinu, eftir
bardaga við Byrd.
Jose Sulaiman, forseti WBF,
segir Lewis verða að verja titla
sína gegn Tyson áður en hann
getur valið sér andstæðing. „Við
getum ekki leyft þetta. Á árs-
fundinum 2000 ákváð stjórn WBF
að Mike Tyson væri fyrsti áskor-
andi. Við töluðum lengi um þetta
mál og náðum sameiginlegri nið-
urstöðu. Á fundi í fyrra var bar-
dagi meistarans og Tyson ákveð-
inn. Við vissum að báðir aðilar
vildu berjast," segir Sulaiman.
Honum finnst að boxararnir tveir
eigi að finna nýjan stað og berj-
ast í apríl. Los Angeles, Manila
og Suður-Afríka eru líklegustu
staðirnir til að halda bardagann.
„Við höfum aldrei tjáð okkur
um hvar bardaginn eigi að fara
fram. Þegar skipuleggjendur
hans töluðu við okkur kom stað-
setning hans aldrei til umræðu.
Lennox Lewis skuldar sjálfum
sér þá ánægju að sigra Tyson og
sýna heiminum að hann er meist-
ari vorra tíma. Ég veit að Tyson
er sannfærður um að hann geti
sigrað Lewis.“
„Þetta er bardaginn sem fólk
vill sjá. Hann verður að fara
fram. Ef Lennox Lewis berst ekki
og sigrar Tyson mun heimurinn
enn vera í óvissu hvor þeirra er
betri." ■
FRÉTTABLAÐIÐ
7. febrúar 2002 FIMMTUDACUR
FÓTBOLTI
Heimsmet hjá
Feofanovu:
Valaí
síðasta sæti
frjálsar Iþróttir Hin rússneska
Svetlana Feofanova bætti eigið
heimsmet í stangarstökki innan-
húss um 1 sentimetra á alþjóð-
legu frjálsíþróttamóti í Globen í
Stokkhólmi í gær. Vala Flosa-
dóttir náði sér ekki á strik. Hún
stökk 4,15 m og varð í síðasta
sæti af átta keppendum.
Feofanova stökk 4,72 m í
gærdag en á sunnudaginn stökk
hún 4,71. Stacy Dragila frá
Bandaríkjunum sem hefur
stokkið 4,70, varð í öðru sæti
með 4,47 m. ■
Afríkubikarinn:
Undanúrslit
í Malí í dag
FÓTBOLTI Þrjú af sterkustu liðum
Afríku eru í undanúrslitum Afr-
íkubikarsins. Það er hinsvegar
undir fjórða liðinu komið, heima-
mönnunum í Mali, hvort keppnin
býður upp á óvæntan úrslitaleik.
Mali mætir í dag sigurstrangleg-
asta liði keppninnar, Kamerún.
Hinn leikurinn er á milli Nígeríu
og Senegal.
Kamerún eru núverandi
meistarar. Liðinu hefur gengið
betur en nokkru öðru afrísku liði
á Heimsmeistarakeppni og hefur
unnið Afríkubikarinn þrisvar
sinnum. Kamerún er búið að
vinna alla fjóra leiki sína í keppn-
inni. Það er búið að skora sex
mörk og hefur ekki fengið neitt á
sig.
„Kamerún er besta liðið í
keppninni," segir kamerúnski
framherjinn Samuel Eto. „Ég
finn að úrslitin eru rétt handan
hcrnsins." Kamerún er í 37. sæti
á styrkleikalista FIFA. Það er
fjórða sterkasta liðið í Afríku, nú-
verandi Ólympíumeistari og tek-
ur þátt á HM í sumar. Það keppir
í Japan og er í riðli með Þýska-
landi, Saudi-Arabíu og írlandi.
Mali er í 104. sæti á styrk-
leikalistanum, 21. sterkasta lið
Afríku. Mali hefur einu sinni
komist í úrslit Afríkubikarsins.
Það tapaði fyrir Kongó 1972. Það
náði ekki að komast í úrslita-
keppni HM. Leikmenn liðsins eru
samt bjartsýnir á móti Kamerún,
enda er leikurinn í dag á þeirra
heimavelli. „Við getum sigrað
hvaða afríska lið sem er,“ segir
David Coulibaly hjá Mali.
Kamerún teflir fram marka-
skorurunum Patrick Mboma og
Samuel Eto. Mboma er leikmaður
ársins í Afríku. Hann skoraði sig-
urmark Kamerún í fjórðungsúr-
slitum á móti Egyptum. Mali tefl-
ir fram Bassala Toure. Hann er
GARY FINNUR
SINN INNRI
MANN
Cary Lineker,
fyrrum leikmað-
ur Everton, er
hér í hlutverki
mömmu mark-
varðar Arsenal,
David Seaman.
Lineker lék
Ferrari í vanda:
Schumacher
á gömlum bíl
formúLA i Ferrari kynnti í gær
liðið sitt í Maranello á Ítalíu. Þar
skýrði yfirmaður liðsins, Jean
Todt, frá því að miklar líkur voru
á því að bíllinn síðan í fyrra,
F2001, verði notaður í fyrstu
keppnirnar. Ákvörðun um málið
verður tekin þegar búið er að
prófa nýja bílinn, E2002, til fulln-
ustu. Málið ætti að skýrast innan
þriggja vikna. Tekið var skýrt
fram að gamli bíllinn væri ein-
ungis bráðabirgðaúrræði.
„Gamli bíllinn er ekki keppnis-
hæfur að eilífu," sagði Todt. „Við
notum hann kannski í fyrstu
kappökstrunum en ekki alla
keppnina. Allar mælingar sýna
að nýji bíllinn er hraðari. Þess
vegna smíðuðum við hann.“
F2001 var kosinn bíll ársins í
Formúlunni í fyrra. F2002 er
endurgerð á honum. Hann er
með nýjum gírkassa, er léttari,
með lægri jafnvægispunkt og
meira vélarafl. ■
SCHUMI í CÆR
Virtist vera búinn að jafna sig eftir slysið á
Spáni um daginn.
Jón Arnar Magnússon var annar í tugþraut á sterku móti í Eistlandi um helgina. Hann er fullur
bjartsýni á komandi keppnistímabil og telur sig vera lausan við þau meiðsl sem lengi hafí hrjáð hann.
mömmuna í
auglýsingu.
Risastór leik-
mynd og blekkj-
andi kvik-
myndataka var
notuð til að láta
Seaman líta út
sem smádreng.
Hann lætur
mömmu þvo óhreinu fötin. „Gary minnti
mig á nokkur mörk sem hann skoraði á
móti mér," sagði Seaman. „Hann myndi
aldrei skora á móti mér núna." Lineker
sagðist hafa skemmt sér konunglega, fyrir
utan óþægindin af þröngum sokkabuxum.
frjálsar Jón Arnar Magnússon
var í öðru sæti í tugþraut á móti í
Eistlandi um síðustu helgi. Mótið
var í boði eistlenska tugþrauta-
meistarans Erki Nool og að sögn
Jóns Arnars voru á þessu móti
flestir sterkustu tugþrautarmenn
Evrópu. „Ég er þokkalega ánægð-
ur með minn árangur á þessu
móti miðað við það sem á undan
er gengið. Síðast liðin þrjú ár hef
ég átt við meiðsli að stríða og það
var frábært að komast í gegnum
þetta mót án þess að finna til þeir-
ra,“ sagði Jón Arnar í samtali við
Fréttablaðið. Jón sagði ennfrem-
ur að þessi árangur hefði tryggt
honum þátttökurétt á Evrópu-
meistaramótið innanhúss sem
haldið verður í Vín í byrjun mars.
„Síðan verður Evrópumeistara-
mót utanhús í sumar og ýmis
verkefni með landsliðinu."
Eftir síðustu Ólympíuleika var
Jón Arnar tekinn af A-styrk Af-
rekssjóðs ÍSÍ og lækkaður niður í
B-styrk. „Það kom að sjálfu sér
ekki á óvart því ég vissi að árang-
ur minn hafði ekki verið góður.
Vissulega var það leiðinlegt en
það var ekki um annað að ræða en
leita sér að vinnu. Ég var svo lán-
samur að fá vinnu í World Class
og hef yfirumsjón með salnum í
Nwankwo Kanu frá Nígeríu sleppur hér með boltann framhjá leikmönnum Ghana I fjórð-
ungsúrslitum Afríkubikarsins á sunnudaginn. Nlgería keppir við Senegal I dag.
búinn að skora tvö mörk í keppn-
inni, þ.á.m. fyrsta markið í fjórð-
ungsúrslitasigri á Suður-Afríku.
I hinum leiknum mætast Ní-
gería og Senegal. „Okkar mark-
mið var að komast í undanúrslit.
Það tókst," segir El-Hadji Diouf
hjá Senegal. Nígería verður að
teljast sigurstranglegra. Það tefl-
ir fram Nwankwo Kanu hjá
Arsenal, sem hefur tvisvar sinn-
um verið leikmaður ársins í Afr-
íku, og Julius Aghaowa. Bæði lið-
in taka þátt á HM í sumar.
Senegal komst í úrslitakeppnina í
fyrsta skipti og er í riðli með
heimsmeisturum Frakka, Úrúg-
væ og Danmörku. Nígería er í
Dauðariðlinum svokallaða, með
Argentínu, Englandi og Svíþjóð.
Það var fyrsta afríska liðið til að
vinna stóra alþjóðlega keppni
þegar það fékk gull á Ólympíu-
leikunum í Atlanta 1996.
Önnur sterk Afríkulið sem
taka þátt á HM í sumar en eru
dottin út úr Afríkubikarnum eru
Túnis og Suður-Afríka. Úrslita-
leikur keppninnar fer fram á
sunnudaginn. ■
VISSULEGA SÁR
Jón Arnar segist ekki neita því að leiðinlegt hafi verið að falla niður I B-flokk
afreksmannasjóðs (SÍ en ekki getað búist við örðu.
Austurstræti. Björn er mjög góð-
ur vinnuveitandi og hefur sýnt
mér mikinn skilning og verið
sveigjanlegur með vinnutíma. Því
hef ég getað stundað íþróttina og
æft eins og ég hef þurft," segir
Jón Arnar Hann viðurkennir að
þau sálrænu áhrif sem það hafi á
sig að falla niður um flokk sé að
hann muni leggja sig enn betur
fram. „Ég er mannlegur að því
leyti, er ekki af baki dottinn og
hofi björtum augum fram á veg-
inn. Eftir vonbrigði síðasta árs
• Evrópumót innanhúss í Vín
í byrjun mars.
• Frjálsíþróttamót í Götqis
f Frakklandi í byrjun júní
• Evrópubikarkeppni utanhúss
i Tallin í Eistlandi í enda júni
• Evrópumeistaramót i Munchen
í Þýskalandi f ágúst
• Fjálsíþróttamót í Talance
í Frakklandi i ágúst
• Bikarkeppni FRÍI Reykjavik
i ágúst.
fór ég rólega af stað við æfinar í
haust. Þegar líða tók á vetur fann
ég að þetta var allt að koma og ég
held að ég hafi náð mér að þeim
meiðslum sem hafa verið að há
mér undanfarin ár.“ Jón telur sig
ekki vera komin í sitt besta form
en það líði óðum að því og hann er
bjartsýnn á góðan árangur á ár-
inu. „Vöðvar og liðir hafa fengið
þá hvíld sem nauðsynleg er til að
vinna bug á meiðslum. Því er ekki
annað að gera en spýta í lófana og
halda áfrarn."
bergljot@frettabladid.is
Ekki annað að gera
en spýta í lófana