Fréttablaðið - 28.05.2002, Page 9
Jtoos: ioin
ÞRIÐIUDACUR 28. maí 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
DANMÖRK
Á rlega eru skráð 3.000 tilvik
flum ofbeldi gegn börnum í
Danmörku. Þetta kemur fram í
nýrri rannsókn, Finns Ursins
Knudsens, yfirlæknis í Glostr-
up. Hann er sannfærður um að
skráð tilvik séu eingöngu topp-
urinn á ísjakanum. Um er að
ræða alls kyns ofbeldi, bruna
eftir sígarettur, barsmíðar og
fleira.
Tónlist er efst á lista Dana
þegar kemur að fjárútlátum
til menningar. 23% nota mest af
peningum sem varið er til
menningar í kaup á tónlist.
Bækur og bíómiðar eru í öðru
sæti. Tónleikar og tónlistarhá-
tíðir ýmis konar í því þriðja.
Bandaríska geimferðastofnunin NASA:
Mikið magn af ís fundið á mars
ceimvísindi Bandarískir vísinda-
menn hafa fundið ís í miklu magni
rétt undir yfirborði reikistjörnunn-
ar Mars. Þar með er ljóst að vatn er
á Mars. Magnið er það mikið, að ef
allur ísinn bráðnaði myndi 500
metra djúpt haf umlykja alla reiki-
stjörnuna. Ofan á ísnum er tæplega
eins metra þykkt jarðvegslag.
Breska fréttastofan skýrði frá
þessu á sunnudaginn. Bandaríska
geimferðastofnunin NASA ætlar þó
ekki að tilkynna þessa uppgötvun
opinberlega fyrr en á fimmtudag-
inn. Sama dag verður birt grein um
hana í vísindatímaritinu Nature.
Það voru upplýsingar frá banda-
ríska könnunarfarinu Mars Odyss-
ey, sem urðu til þess að sannfæra
vísindamenn um að frosið vatn væri
að finna á Mars.
Þessi uppgötvun getur blásið
nýju lífi í vangaveltur um það, hvort
líf hafi þrifist á Mars og leynist þar
jafnvel enn. Ennfremur má búast
við því að meiri áhersla verði lögð á
að senda mannað könnunarfar til
mars á allra næstu áratugum. ■
ÞARNA ER ALLT FULLT
AF FROSNU VATNI
Bandarfska könnunarfarið Mars Odyssey
hefur sent frá sér upplýsingar, sem sann-
fært hafa vísindamenn um að frosið vatn
sé í miklu magni á reikistjörnunni Mars.
Myndin er fengin frá bandarísku geim-
ferðastofnuninni NASA.
Alvarlegir sjúkdómar
algengari í bændastétt
Parkinson sjúkdómurinn og ákveðnar tegundir krabbameina leggjast frekar á bændur en aðrar
stéttir. Bresk stjórnvöld hafa fyrirskipað rannsókn á efnum sem notuð eru í landbúnaði. Frekari
rannsókna er þörf hérlendis.
HEILBRICÐISMÁL Bresk stjórnvöld
hafa fyrirskipað rannsókn til að
kanna tengsl milli eiturefna í land-
búnaði og Parkinsonsjúkdómsins.
Rannsókninni er til komin vegna
-—— ótta fólks við að
efni sem notuð eru
í garðyrkju og af
bændum kunni að
valda sjúkdómn-
um, segir í grein í
breska dagblaðinu
Independent.
Skoða á sérstak-
lega hvort illgres-
iseyðar og áburð-
ur geti valdið
sjúkdómnum.
Rannsóknir ytra
hafa sýnt að meira
er um Parkinson
sjúkdóm í dreifð-
ari byggðum
landsins en í borg-
um og bæjum. Vil-
hjálmur Rafnsson,
prófessor í heil-
brigðisfræði, seg-
Parkinson sjúk-
dómur kemur
til þegar heila-
frumur fólks
hætta að fram-
leiða nægilegt
magn
dópamíns.
Dópamín er
nauðsynlegt til
boðsendinga í
heilanum. Of
lítið magn þess
leiðir til
óstjórnandi
skjálfta og
stirðnunar lík-
amans sem
einkennir sjúk-
dóminn.
ir að lengi hafi verið vitað til þess
að tíðni sjúkdómsins væri meiri í
bændastétt en hjá öðrum. Hann
segir þetta þó ekki hafa verið rann-
sakað sérstaklega hér. í rannsókn
sem Vilhjálmur stóð að fyrir um 10
árum síðan kom hins vegar í ljós
að ákveðin krabbamein eru tíðari
hjá körlum í bændastétt hér á
landi en almennt í körlum. „Niður-
staðan kom nokkuð á óvart. Menn
höfðu trúað að landbúnaður væri
hreinni hér og við ekki jafn þróuð í
efnanotkun og erlendis," sagði
hann. Tíðni krabbameinanna sem
Vilhjálmur rannsakaði, sem eru
I SVEITINNI
Þótt Islenskur landbúnaður hafi á sér yfirbragð hreinleika og heilnæmis eru eiturefni víða notuð. Notkunin mun þó oft árstlðabundin, svo
sem I garðyrkju, matjurtarækt, kornrækt eða I sauðburði á vorin.
krabbamein í blóðmyndandi vef og
eitlavef, sagði hann vera svipaða
og hjá bændum erlendis. „Það er
full ástæða til að skoða þetta nánar
hér á landi,“ bætti hann við.
í Bretlandi er haft eftir vís-
indamönnum að Paraquat, algeng-
ur illgresiseyðir, geti haft tauga-
eitrandi áhrif sem leitt geti til
Parkinsonsjúkdómsins. Sigur-
björg Gísladóttir, forstöðumaður
eiturefna- og hollustuverndar-
sviðs Hollustuverndar ríkisins,
segir Paraquat bannað hér á landi
en hafi verið í einhverri notkun
fram undir árið 2000. „Meðal efn-
anna sem notuð eru sem illgres-
iseyðar eða skordýraeitur eru
mörg mjög hættuleg og vitanlega
flokkuð sem slík,“ sagði hún og
bætti við að á árum áður hafi ver-
ið mjög hættuleg efni í umferð.
„Sem betur fer dregur stöðugt úr
því og notkunin hefur verið tak-
mörkuð verulega. Svona efni eru
ekki leyfð nema að hafa farið í
gegnum sérstaka skráningu, sem
þýðir að farið er í gegnum öll eit-
urefna- og öryggisgögn. Stefnan
hefur líka verið að reyna að forð-
ast hættulegustu efnin, ef önnur
hættuminni eru á markaði.“
oli@frettabladid.is
Breyttar áherslur í Árborg:
Framsókn og Samfylking ræðast við
Á SELFOSSI
Umdeilt prófkjör sjálfstæðismanna á Selfossi og meintar deilur innan flokksins eru sagðar
hafa spillt fyrir mögulejjtum þeirra til áframhaldandi samstarfs við Framsóknarflokk. Annar
maður á lista vill láta skiptá út bæjarstjóranum meðan, framsóknarmenn vilja hafa bæjar-
stjórann áfram. Samfylking vill láta auglýsa starfið.
Fengu ekki að gifta sig:
Reyndu
sjálfsmorð
norecur Ungt par af pakistönsk-
um uppruna reyndi að fyrirfara
sér á hótelherbergi í Ósló. Ástæð-
an er sú að foreldrar þeirra höfðu
ráðstafað þeim í hjónaband, en
ekki saman. Málið hefur vakið
mikla athygli í Noregi og víðar.
Vinur þeirra, sem að sögn Ver-
dens Gang, hafði fengið á tilfinn-
inguna að þau hefðu eitthvað í
hyggju, kom á hótelið um nóttina.
Strákurinn svaraði hringingu
hans á herbergið en kom aldrei
niður. Nokkru síðar ákvað nætur-
vörðurinn að fara inn í herbergið,
því lögreglan hafði neitað að
koma á staðinn. Parið var þá með-
vitundarlaust af völdum lyfja.
Þau voru flutt á sjúkrahús og
tókst að bjarga lífi þeirra. ■
sveitarstiórnarmál Fastlega er
búist við nýju meirihlutasam-
starfi Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks í Árborg. For-
svarsmenn flokkanna hittust til
viðræðna í gærkvöldi. Ásmund-
ur Sverrir Pálsson, oddviti Sam-
fylkingar og Þorvaldur Guð-
mundsson, oddviti framsóknar-
manna, sögðu báðir viðræður
ganga vel en áttu síður von á að
gengið yrði frá samstarfinu í
gærkvöldi. Áður átti Framsókn-
arflokkurinn í meirihlutasam-
starfi við Sjálfstæðisflokk og
Dizkólistann sem bauð ekki
fram að þessu sinni.
Hvorugur fulltrúi Framsókn-
ar gaf kost á sér til áframhald-
andi setu í bæjarstjórn Árborg-
ar. Kristján Einarsson og María
Hauksdóttir, segjast bæði ætla
að einbeita sér að öðrum störf-
um. Þau hafa starfað að bæjar-
málum á svæðinu um 12 ára
skeið. Þau segja engan fót fyrir
sögusögnum um að þeim hafi
verið skipt út til að greiða fyrir
nýju meirihlutasamstarfi Fram-
sóknar og Samfylkingar. ■
sértilboð
Berlin
Brottför á laueardöeum
Sölutímabil
24. maí - 8. júní
-takmarkað
sætaframboð
www.plusferdir. is
Hliðasmára 15 • Simi 535 2100